Stefnan sett á að kljúfa hljóðmúrinn 24. ágúst 2009 03:30 Flaugin náði 2.700 metra hæð á undir hálfri mínútu en samkvæmt útreikningum átti hún að ná þriggja kílómetra hæð á sama tíma.fréttablaðið/anton
Hátt í hundrað manns fylgdust með þegar öflugustu eldflaug sem smíðuð hefur verið af Íslendingum var skotið á loft frá Höskuldarvöllum, nálægt fjallinu Keili, um klukkan hálfþrjú í gær. Eldflaugin, sem vó átta kíló, náði þúsund kílómetra hraða og 2.700 metra hæð á 25 sekúndum. Fallhlíf var í flauginni svo hún gæti svifið til jarðar. Útreikningar gerðu ráð fyrir að flaugin næði 3.000 metrum en vegna vinda flaug vélin örlítið á ská. Eldsneyti vélarinnar er gert úr saltpétri, sykri, þrúgusykri og ávaxtasykri og er algjörlega vistvænt. Magnús Már Guðnason, einn aðstandenda áhugamannafélagsins AIR, sem stóð fyrir uppákomunni, segir stefnuna setta á að kljúfa hljóðmúrinn en þá þarf að fara hraðar en 1.236 kílómetra á klukkustund. Það ætla þeir að gera með eldflaug sem hefur verið í smíðum í tvö ár og á að ná um 1.500 kílómetra hraða. Spáir Magnús að henni verði skotið upp í fyrsta lagi næsta sumar. Áhugamannafélagið AIR hefur verið starfrækt frá 2006 en þá skutu þeir upp fyrstu eldflauginni sinni. Í maí árið 2008 var eldflaug skotið upp á vegum nemenda í HR og komst sú eldflaug á 750 kílómetra hraða. Magnús var þá aðstoðarkennari á námskeiðinu ásamt Smára Frey Smárasyni, hinum aðstandanda AIR. Magnús segist hafa fengið áhuga á eldflaugum fyrir fimm árum eftir að hafa verið að fikta mikið í flugeldum og skoðað fræðin bak við þá. Kynntist hann tveimur strákum úr Hafnarfirði, Smára áðurnefndum og Steini Hlíðari Jónssyni og fóru þeir fljótlega að smíða eldflaugar. „Það sem er skemmtilegast er að þetta samtvinnar efna-, eðlis- og verkfræði. Þetta er svona raunvísinda- og verkfræðipakki,“ segir Magnús. Nánari upplýsingar um félagið má nálgast á vefsíðunni www.eldflaug.com vidir@frettabladid.is
Mest lesið Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Orri Harðarson er allur Innlent Maðurinn á Esjunni er fundinn Innlent Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Innlent Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli Innlent „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Innlent „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Innlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Fleiri fréttir Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára „Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Leitin ekki enn borið árangur Sjá meira