Innlent

Hinn handtekni í annarlegu ástandi

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Ekki hefur verið unnt að yfirheyra karl um tvítugt sem handtekinn var fyrr í dag í tengslum við sprengjuhótunina í Borgarholtsskóla vegna ástands hans. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Hann er ekki nemandi við skólann.

Sprengjuhótunin barst skólanum símleiðis laust eftir hádegið. Skólinn var þegar rýmdur og svæðið umhverfis hann girt af. Eftir ítarlega leit var ljóst að engin sprengja var innandyra og að um gabb væri að ræða.




Tengdar fréttir

Maður handtekinn í tengslum við sprengjuhótunina

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla handtekið ungan karlmann í tengslum við sprengjuhótunina í Borgarholtsskóla í hádeginu í dag. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, vildi ekki staðfesta það í samtali við fréttastofu að svo stöddu en staðfesti að verið væri að leita aðila í tengslum við málið. Sprengjuhótunin barst skólanum símleiðis laust eftir hádegið.

Sprengjuleitarmenn komnir í Borgarholtsskóla

Sprengjubíll frá ríkislögreglustjóra er kominn upp í Borgarholtsskóla og verður gerð leit að sprengjunni á næstu mínútum. Samkvæmt upplýsingum frá fréttamanni Stöðvar 2 og Vísis sem er er á staðnum er töluverður viðbúnaður þar. Fjölmargir lögreglubílar og -hjól hafa verið send á staðinn. Þá var dælubíll frá slökkviliðinu og tveir sjúkrabílar sendir á staðinn. Sprengjuhótunin barst símleiðis laust eftir hádegið í dag.

Nemendur þurftu að skilja eftir allar eigur og hlaupa út

Varaformaður nemendafélags Borgarholtsskóla segir nemendur hafa þurft að rýma skólann á augabragði. Sumir þurftu að skilja bíl- og húslykla og önnur verðmæti eftir inni í skólanum svo rýmingin gengi hratt fyrir sig.

Borgarholtsskóli rýmdur vegna sprengjuhótunar

Borgarholtsskóli í Grafarvogi var rýmdur fyrir stundu og er fjölmennt lögreglulið statt við skólann núna. Að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er um sprengjuhótun að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×