Stjórnarskrárnefnd þurfti fáeina mánuði til að ljúka við störf sín 8. mars 2009 14:12 Þorsteinn Pálsson segir að nefndin hefði einungis þurft nokkra mánuði til að ljúka verki sínu.
Stjórnarskrárnefnd hefði einungis þurft fáeina mánuði til viðbótar til að ljúka við störf sín. Þetta kom fram í máli Þorsteins Pálssonar ritstjóra Fréttablaðsins sem átti sæti í nefndinni. Þorsteinn og Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, voru gestir á Sprengisandi á Bylgjunni i morgun. Þorsteinn sagði að stjórnarskrárnefnd sem skipuð var þegar Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur mynduðu meirihluta í þinginu hefði ekkert starfað síðan í ársbyrjun 2007. Stjórnarskrárnefnd hafi ekki fengið neitt umboð frá ríkisstjórn sjálfstæðismanna og Samfylkingarinnar. Það hefði hins vegar ekki þurft nema hálft ár til níu mánuði til þess að hún gæti klárað sitt verk. Þorsteinn sagði að einn stærsti ágreiningurinn í stjórnarskrárnefndinni hefði verið um auðlindamálið. Samfylkingin hafi haft mjög stífar kröfur um að settar yrðu skyldur til skattlagningar vegna nýtinga á auðlindum inn í stjórnarskrá. Í nýju ákvæði sem ríkisstjórnin hafi kynnt sé þetta grundvallaratriði farið í burtu. Samfylkingin hafi því tekið grundvallarstefnubreytingu í þessu mikilvæga máli. „Ef það hefði gerst fyrir tveimur árum þá hefði ekki þurft marga mánuði til að ljúka þessu máli," sagði Þorsteinn. Þá sagðist Þorsteinn vera þeirrar skoðunar að einn helsti stjórnskipunarvandinn sem Íslendingar stæðu frammi fyrir væri veik staða þingsins. Hugmyndir um breytingar á stjórnarskránni núna gengu núna fyrst og fremst út á það að veika stöðu Alþingis enn frekar. „Annars vegar með því að taka frá Alþingi valdið til þess að breyta stjórnarskránni og leggja það fyrir þjóðina," sagði Þorsteinn. Hins vegar væri auðlindaákvæðið orðað svo almennt að hann óttaðist að túlkunaratriðið á því færi fyrir dómsstóla. Með því væri verið að færa valdið frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum inn til dómsstólanna. Jón Sigurðsson tók undir þá skoðun að í stjórnarskrá þyrfti að vera eins lítið tilefni til að túlka og mögulegt væri. Hann tók jafnframt undir það að stjórnarskrárnefnd hefði þurft fáeina mánuði til þess að ljúka við verk sitt.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Sjá meira