Innlent

Samfylkingin fundar einnig í fyrramálið

Hluti af þingmönnum Samfylkingarinnar.
Hluti af þingmönnum Samfylkingarinnar.

Þingflokkur Samfylkingarinnar kemur saman klukkan tíu í fyrramálið, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar á sama tíma í Alþingishúsinu.

Þingmenn Samfylkingarinnar munu ræða framtíð núverandi ríkisstjórnar. Flokkurinn hefur meðal annars gert þá kröfu fyrir áframhaldandi stjórnarsamstarfi að gerðar verði breytingar á yfirstjórstjórn Seðlabankans.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vonar að forysta Sjálfstæðisflokksins sjái til þess að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og fyrrum formaður flokksins, verði látinn víkja.


Tengdar fréttir

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar í fyrramálið

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðaður til fundar í þinghúsinu í fyrramálið, segir Arnbjörg Sveinsdóttir þingflokksformaður. Þingflokkurinn mun ræða ríkisstjórnarsamstarfið og þá stöðu sem er komin í íslenskum stjórnmálum. Fundurinn hefst klukkan tíu.

Vonar að Davíð verði látinn fara úr Seðlabankanum

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vonar að Sjálfstæðisflokkurinn sjái til þess að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og fyrrum formaður flokksins, verði látinn víkja. Hún segir að með afsögn Björgvins G. Sigurðarssonar, Viðskiptaráðherra, og stjórnar Fjármálaeftirlitsins hafi ákveðið skref verið stigið. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Ragnheiður vonar að flokkur sinn hafi kjark til að stíga sama skref með bankaráð bankastjóra Seðlabankans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×