Innlent

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar í fyrramálið

Frá þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins.
Frá þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðaður til fundar í þinghúsinu í fyrramálið, segir Arnbjörg Sveinsdóttir þingflokksformaður. Þingflokkurinn mun ræða ríkisstjórnarsamstarfið og þá stöðu sem er komin í íslenskum stjórnmálum. Fundurinn hefst klukkan tíu.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði fyrr í kvöld að framtíð ríkisstjórnarinnar ráðist að öllum líkindum á morgun. Ekki sé hægt að bíða mikið lengur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×