Innlent

Leiðréttingar eru sjónhverfingar

Leiðréttingarleiðir bankanna eru sjónhverfingar að mati Hagsmunasamtaka heimilanna sem hafa skoðað þær ítarlega. Þau kalla því áfram eftir tafarlausum almennum aðgerðum stjórnvalda.

Óvissan er mikil um fjármálaumhverfi framtíðar en eftir grandskoðun hafa samtökin sent frá sér greinargerð með samanburði á leiðréttingaleiðum fjögurra banka - Arion, Íslandsbanka, Landsbanka og Frjálsa fjárfestingarbankans - og greiðslujöfnunarleið stjórnvalda. Þar segir að allar leiðirnar lækki greiðslubyrði lána til að byrja með, gallinn á þeim öllum - nema lausn Arion - sé sá að heildargreiðslubyrði yfir lánstímann verður meiri ef lántakar þiggja leiðréttinguna. Það þykir samtökunum furðuleg niðurstaða í ljósi þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi upplýst að stóru bankarnir þrír hafi svigrúm til að lækka greiðslu- og skuldabyrði heimilanna um allt að 44% af verðmæti lánasafnanna.

Leiðréttingar bankanna á gengistryggðum lánum eru ásættanlegar til skamms tíma, segja samtökin, en líta ekki vel út þegar heildargreiðslubyrði af 25 ára láni er skoðuð. Samtökin reikna það út að þiggi fólk greiðslujöfnun stjórnvalda verði sú leið langdýrust fyrir skuldara þegar upp er staðið að lánstíma loknum - heildargreiðslubyrði hækki um 180%. Af öðrum leiðum, komi leið Arion banka best út.

Þá gefa samtökin leiðréttingum bankanna á verðtryggðum fasteignalánum ekki háa einkunn, leið Íslandsbanka er sögð klén en leið Arion banka geti verið veruleg búbót - fyrir þá sem eru mjög yfirveðsettir. Niðurstaða samtakanna er því að leiðirnir lækki almennt greiðslubyrði tímabundið - gegn því að hækkun vaxta og meira sé borgað til baka á endanum. Samtökin telja að stóru bankarnir þrír eigi að skila öllum afslættinum sem þeir hafi fengið frá gömlu bönkunum - og því eigi þeir að geta veitt 50% afslátt á höfuðstóli gengistryggðra lána en 20% af verðtryggðum.

Í fylgiskjali má kynna sér ítarlega greinargerð Hagsmunasamtaka heimilanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×