Mark Fram skráð sem sjálfsmark - Myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2009 16:04
Paul McShane skoraði fyrsta mark Fram gegn Fjölni í vikunni að flestra mati. Engu að síður skráði Magnús Þórisson dómari markið sem sjálfsmark Ásgeirs Arons Ásgeirssonar. Myndband af markinu má sjá með því að smella á hlekkinn hér að ofan. Sjálfur vissi Ásgeir Aron ekki að dómari leiksins hafi skráð markið sem sjálfsmark þegar Vísir hafði samband við hann í dag. „Þetta kemur mér nokkuð á óvart, ég verð að viðurkenna það," sagði Ásgeir Aron. „Boltinn var á leiðinni inn og ég var að reyna að bjarga honum. Boltinn var kominn vel inn fyrir stöngina þegar ég reyndi að taka hann - ég sá þetta allavega þannig." „Auðvitað finnst mér það ekki skemmtileg tilhugsun að markið sé skráð sem sjálfsmark á mig hjá KSÍ. Ég mun þó ekki gera neitt mál úr því, svo sem." Ásgeir Aron fékk svo að líta rauða spjaldið seint í leiknum. „Ég get lítið kvartað undan því. Ég var á mikilli ferð og það voru búnar að vera nokkrar tæklingar á undan. Kannski mat dómarinn það þannig að leikurinn væri að fara úr böndunum og hann yrði því að gera eitthvað í málinu. Ég reyndi samt að fara í boltann en fór í manninn." Þar sem Fjölnir tapaði leiknum er ljóst að liðið er fallið í fyrstu deildina. „Þetta er búin að vera nokkuð erfið vika en þetta er ekki eitthvað sem gerðist í þessum eina leik. Það er búinn að vera langur aðdragandi að þessu. En vissulega hundleiðinlegt." Samningur Ásgeirs Arons við Fjölni rennur út í haust og óvíst hvað tekur við á honum. „Ég veit ekki hvað gerist en mér líður vel í Fjölni. Það er þó ekki búið að ræða við mig enn um framhaldið."Smelltu hér til að sjá staðfesta leikskýrslu KSÍ úr leiknum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Sjá meira