Sprenging í smygli á kannabisfræjum 24. október 2009 05:30 Aldrei meira magn tekið af kannabisfræjum.
Tollgæslan hefur tekið á annað þúsund kannabisfræja sem reynt var að smygla til landsins á fyrstu níu mánuðum ársins. Segja má að um sprengingu sé að ræða, því allt árið í fyrra voru tekin 390 stykki. Þá tók tollgæslan á ellefta kíló af amfetamíni fyrstu níu mánuðina, en tók á sjöunda kíló allt árið í fyrra. Einnig hafa 105 vopn verið gerð upptæk það sem af er árinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum Tollstjóra yfir ólöglegan varning og fíkniefni sem tollgæslan hefur stöðvað á árinu. „Þetta er unnið í góðu samstarfi við lögregluyfirvöld, en lögregla rannsakar til dæmis öll fíkniefnamál,“ segir Karen Bragadóttir, forstöðumaður tollasviðs. Hún segir að sú þróun að tollgæsla hafi tekið umtalsvert meira af amfetamíni, en minna af kókaíni á árinu en allt árið í fyrra geti verið vísbending um að menn séu að leita í ódýrara efni. Amfetamínið sé að miklu leyti sent frá Hollandi og Danmörku. Hvað varðar margföldun á magni kannabisfræja sem tekið hefur verið í ár, miðað við 2008, segir Karen að líklegt sé að framleiðsla á kannabis sé að færast hingað til lands, eins og lögregla hafi bent á í kjölfar töku margra stórra kannabisverksmiðja. „Fræin sem tekin hafa verið hafa nær eingöngu verið í póstsendingum,“ segir hún. „Í tengslum við stóraukið magn þeirra vekur athygli að lítið virðist vera reynt að smygla inn hassi og maríjúana. Þarna er klárlega samhengi í þróuninni.“ Mun færri vopn hafa verið haldlögð í ár en í fyrra því þá voru þau 455 talsins á Keflavíkurflugvelli einum. Ekki liggja fyrir tölur á landsvísu frá 2008. „Þessi fækkun er talin að stórum hluta til komin af því að Íslendingar hafa dregið svo mikið úr ferðalögum,“ segir Karen. „Mikið af haldlögðum vopnum hefur komið í farangri fólks frá Spáni í gegnum tíðina, svo sem hnúajárn, fjaðurhnífar, loftbyssur, eggvopn, handjárn og fleira af því tagi.“ Magn stera sem tollgæsla hefur haldlagt hefur margfaldast á milli ára, eins og fram hefur komið. Þeir eru sendir frá Póllandi, Ungverjalandi, Rúmeníu, Bretlandi og Taílandi. Karen undirstrikar mikilvægi góðrar samvinnu tollgæslunnar við meðal annars lögreglu, Lyfjastofnun og Matvælastofnun, sem sé undirstaða góðs árangurs.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira