Verðbólguáhrif draga úr svigrúmi ríkisins 30. maí 2009 06:00 Helst er að víkja megi til hliðar um stund áhyggjum af verðbólguáhrifum skattahækkana á verðtryggðar skuldir á sólskinsdögum á ströndinni. Flestir vonast eftir góðu sumri.Fréttablaðið/Valli
Svigrúm hins opinbera til að hækka neysluskatta er minna vegna áhrifa á vísitölu neysluverðs, segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur Greiningar Íslandsbanka. Aðrir skattar, svo sem tekju- eða fjármagnsskattar, hafa ekki sömu áhrif á verðbólguna. Jón Bjarki segir hins vegar ómögulegt að spá fyrir um hvaða leiðir ríkið kjósi að fara í frekari tekjuöflun, hvort það verði með niðurskurði og hagræðingu eða aukinni skattheimtu, en líklegast verði það þó með blöndu þessa alls. Samkvæmt útreikningum Jóns Bjarka nema verðtryggðar skuldir heimila alls um það bil 1.440 milljörðum. Af því skulda heimilin rúmlega 670 milljarða í gegnum lán hjá bönkunum, um það bil 600 milljarða hjá Íbúðalánasjóði og ríflega 170 milljarða lífeyrissjóðunum. Áhrif síðustu skattahækkana muni því auka skuldir heimilanna um rúma sjö milljarða króna. Hann segir erfiðara að áætla áhrifin á skuldir sveitarfélaga, en þau séu þó mun minni. „Sveitarfélögin eru líka eðlilegir útgefendur verðtryggðra skulda þar sem tekjur þeirra eru í eðli sínu verðtryggðar og hreyfast nokkuð jafnt með verðbólgunni, þótt frá því kunni að verða einhver frávik í ástandi eins og núna.“ Jón Bjarki segir að þótt verðtrygging lána fyrirfinnist víðar en hér sé sú útbreiðsla verðtryggðra húsnæðislána sem hér sé nánast einsdæmi í heiminum. „Í flestum Evrópulöndum taka fyrst og fremst ríki, sveitarfélög og veitufyrirtæki verðtryggð lán, en þau hafa tekjur sem hreyfast með verðlagi. Það gildir ekki um tekjur almennings hér.“ Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, segir enn beðið nokkurra ársreikninga sveitarfélaga, en samkvæmt reikningum ársins 2007 hafi skuldir þeirra þá numið 300 milljörðum króna. Upphæðin hafi líkast til hækkað ríflega í fyrra, enda hafi erlendar skuldir tvöfaldast vegna gengisáhrifa og innlendar skuldir hækkað um fimmtung. Sé miðað við 350 milljarða skuld segir Óttar að hækkun vegna skatthækkananna nú muni nema tveimur milljörðum króna. Upphæðin er eitthvað lægri vegna hlutfalls erlendra skulda, en upplýsingar um skiptingu skulda sveitarfélaganna liggja ekki fyrir. „Þessi hækkun væri þó ekki óyfirstíganleg. Ef við gefum okkur að greiðslubyrðin sé einn tíundi á ári, þá eru það 35 milljarðar sem dreifast yfir á sjötíu sveitarfélög,“ segir Óttar. olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira