Gott að ríkisstjórnin leiði hugann að hag atvinnulífsins og fjölskyldna 7. mars 2009 14:00 Birgir Ármannsson segir að það vanti verðmiða á tillögur ríkisstjórnarinnar. „
Í tillögum ríkisstjórnarinnar er að finna mörg góð markmið," segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þær tillögur sem ríkisstjórnin kynntu í gær til þess að sporna við atvinnuleysinu. Með tillögunum ætlar ríkisstjórnin að skapa rúmlega 4000 ársverk á næstu misserum. „Það er í sjálfu sér jákvætt þegar ríkisstjórnin leiðar hugann að aðgerðum til að bæta stöðu atvinnulífsins og fjölskyldnanna í landinu. Athygli hennar hefur að undanförnu því miður verið bundin of mikið við önnur mál," segir Birgir. Birgir segir að mörg af þessum verkefnum séu í sjálfu sér ekkert nýmæli en hann vonist til þess að með aðgerðum í þessa veru verði hægt að bæta atvinnuástandið. „Á þessari stundu er samt erfitt að átta sig á því hvernig ríkisstjórnin ætlar að hrinda sumum þessum verkefnum í framkvæmd," segir Birgir. Þá segist Birgir hafa áhyggjur af því að í ákveðnum tilvikum muni árangurinn skila sér hægar heldur en ríkisstjórnin gerir ráð fyrir. „Ég nefni til dæmis aðgerðir í þágu nýsköpunar í atvinnulífinu sem eru fín markmið, en hætt er við að árangurinn muni ekki birtaast jafn hratt og þessar tillögur gera ráð fyrir," segir Birgir. Birgir bendir hins vegar á að það vanti verðmiðann á þessar tillögur og til þess að það sé hægt að leggja raunhæft mat á þær þurfi að koma skýrar fram hvernig eigi að fjármagna þær „Raunhæfustu aðgerðirnar sem stjórnvöld geta gripið til eins og staðan er í dag eru annars vegar að koma bankakerfinu aftur í gang og stuðla að vaxtalækkunum. Ég held að það séu þær aðgerðir sem í raun og veru skipti mestu máli fyrir atvinnulífið og þar með heimilin í landinu," segir Birgir að lokum.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira