Innlent

Gott að ríkisstjórnin leiði hugann að hag atvinnulífsins og fjölskyldna

Birgir Ármannsson segir að það vanti verðmiða á tillögur ríkisstjórnarinnar.
Birgir Ármannsson segir að það vanti verðmiða á tillögur ríkisstjórnarinnar.
„Í tillögum ríkisstjórnarinnar er að finna mörg góð markmið," segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þær tillögur sem ríkisstjórnin kynntu í gær til þess að sporna við atvinnuleysinu. Með tillögunum ætlar ríkisstjórnin að skapa rúmlega 4000 ársverk á næstu misserum.

„Það er í sjálfu sér jákvætt þegar ríkisstjórnin leiðar hugann að aðgerðum til að bæta stöðu atvinnulífsins og fjölskyldnanna í landinu. Athygli hennar hefur að undanförnu því miður verið bundin of mikið við önnur mál," segir Birgir.

Birgir segir að mörg af þessum verkefnum séu í sjálfu sér ekkert nýmæli en hann vonist til þess að með aðgerðum í þessa veru verði hægt að bæta atvinnuástandið. „Á þessari stundu er samt erfitt að átta sig á því hvernig ríkisstjórnin ætlar að hrinda sumum þessum verkefnum í framkvæmd," segir Birgir.

Þá segist Birgir hafa áhyggjur af því að í ákveðnum tilvikum muni árangurinn skila sér hægar heldur en ríkisstjórnin gerir ráð fyrir. „Ég nefni til dæmis aðgerðir í þágu nýsköpunar í atvinnulífinu sem eru fín markmið, en hætt er við að árangurinn muni ekki birtaast jafn hratt og þessar tillögur gera ráð fyrir," segir Birgir.

Birgir bendir hins vegar á að það vanti verðmiðann á þessar tillögur og til þess að það sé hægt að leggja raunhæft mat á þær þurfi að koma skýrar fram hvernig eigi að fjármagna þær „Raunhæfustu aðgerðirnar sem stjórnvöld geta gripið til eins og staðan er í dag eru annars vegar að koma bankakerfinu aftur í gang og stuðla að vaxtalækkunum. Ég held að það séu þær aðgerðir sem í raun og veru skipti mestu máli fyrir atvinnulífið og þar með heimilin í landinu," segir Birgir að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×