Ólíklegt að fleiri finnist á lífi 5. október 2009 03:00 gríðarleg Eyðilegging Hjálparstarfsmenn í Súmötru leita að lífi í húsarústum.Fréttablaðið/ap
Hjálparstarfsmenn telja ólíklegt að fleiri finnist á lífi í rústum á eyjunni Súmötru í Indónesíu. Tveir stórir jarðskjálftar skóku eyjuna í síðustu viku. Sá fyrsti var upp á 7,6 á Richter og sá síðari upp á 6,8. Heilu þorpin lögðust í rúst í skjálftunum og vegaskemmdir hafa hindrað hjálparstarf í borginni Padang, sem fór sérstaklega illa út úr skjálftunum. Um þúsund hafa týnt lífi og allt að þrjú þúsund er saknað. Hjálparstarfsmenn hafa miklar áhyggjur af svæðunum í kringum borgina. Íbúi í einu þorpinu sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna að það væri óþarfi að senda hjálp á svæðið þar sem allir væru látnir. Ian Bray, starfsmaður Oxfam-góðgerðarsamtakanna, sagði í samtali við fréttastofu BBC að gríðarlega erfitt verkefni biði hjálparstarfsmanna. „Það tekur tíu klukkutíma að keyra 25 kílómetra vegarkafla í Padang. Venjulega tekur það 35 mínútur,“ sagði hann. Alistair Leithead, fréttamaður BBC, skoðaði aðstæður í einangruðu þorpi norðan við Padang. Hann segir eyðilegginguna ótrúlega. Heilu trén hafi rifnað upp í hlíðum og sturtast með jarðvegi í nærliggjandi dali. - afb
Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fleiri fréttir Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Sjá meira