Umdeildur McDonald's-staður væntanlegur í Louvre Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. október 2009 08:38
Skiptar skoðanir eru um nýjan veitingastað McDonald's sem til stendur að opna í Louvre-listasafninu í París. Helstu menningarvitar Frakklands reita nú hár sitt í bræði en Frakkar líta á matargerð og listir sem tvö helstu menningareinkenni þjóðarinnar. Stjórnendur hins heimþekkta hamborgarastaðar láta slíkt hins vegar sem vind um eyrun þjóta og hyggjast fagna 30 ára afmæli McDonald's í Frakklandi með því að opna 1.142. staðinn þar í landi í Louvre-listasafninu, höfuðvígi hinna fínþráðóttari vefja franskrar menningar. Listasögufræðingur sem starfar á safninu segir þetta vera kornið sem fylli mælinn. Hann vill reyndar ekki láta nafns síns getið í viðtalið við Telegraph en segir að þarna sé komið skínandi dæmi um gegndarlausa neysluhyggju auk þess sem lyktin á safninu verði óþolandi þegar farið verði að steikja þar hamborgara og franskar daglangt. Nógu slæmt hafi verið þegar Starbucks fékk að opna kaffihús á safninu í fyrra. McDonald's-staðurinn nýi opnar í nóvember og reyndar um leið kaffihúsið McCafé svo það ætti að verða auðvelt um vik að fá sér tíu dropa á safninu. Stjórnendur safnsins taka gagnrýninni með ró og segja í tilkynningu, sem þeir sendu frá sér, að sjálfsagt sé að bjóða safngestum upp á eins ríkulegt og fjölbreytt úrval veitingastaða og mögulegt er.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira