35 prósent launþega hafa lent í skerðingu 31. ágúst 2009 15:30
Ríflega þriðjungur eða 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Frá þessu er greint á heimasíðu ASÍ en Capacent Gallup gerði könnun á þessu fyrir sambandið í júní. Þar kemur í ljós að flestir, eða rúmlega 18 prósent hafa lent í launalækkun, hjá 9 prósentum hefur vinnutími verið styttur og 8 prósent hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Í samskonar könnun sem gerð var í desember 2008 var hlutfallið mun lægra en þá höfðu 21 prósent launafólks orðið fyrir slíkri skerðingu. Þegar svörin eru skoðuð nánar kemur í ljós að mun fleiri karlar en konur hafa lent í skerðingu launa og/eða starfshlutfalls og þá vekur athygli að 40 prósent iðnaðarmanna hafa orðið fyrir því að laun hafa verið lækkuð eða vinnutími styttur. „Þá hafa þeir sem eru með laun yfir 550 þúsund á mánuði frekar lent í launalækkun en þeir sem hafa lægri laun." Könnunin leiðir einnig í ljós að töluvert hafi dregið úr óvissu á meðal launafólks en þegar spurt var hvort fólk teldi sig í öruggri vinnu svöruðu 77 prósent því játandi en 23 prósent töldu líkur á því að viðkomandi gæti orðið atvinnulaus. „Sama spurning var borin upp í könnunum í október og desember 2008. Í október töldu 69 prósent sig vera í öruggri vinnu en 31 prósent óttuðust atvinnumissi en í desember hafði þeim fjölgað í 76 prósent sem töldu sig í tryggri vinnu en 24 prósent óttuðust að missa hana. „Þróunin er því sú að eftir mikið óvissu ástand sl. haust eru sífellt fleiri sem telja sig í öruggu starfi, þó vissulega sé það alvarlega staða að tæplega fjórði hver launamaður telji raunhæfar líkur á að hann geti misst vinnuna. Þarna skera iðnaðarmenn sig einnig úr en 40 prósent þeirra sem enn eru í vinnu óttast atvinnumissi," segir í fréttinni á heimasíðu ASÍ.
Mest lesið Fundaði með borginni: „Hef upplifað ýmislegt en aldrei svona grimmd“ Innlent „Beðið um leyfi fyrir átta þúsund manns“ Innlent Turnarnir svínvirka en fegrunaraðgerðir í farvatninu Innlent Skipulagði árásina í Colorado í heilt ár Erlent „Norðan óveður á landinu í dag“ Innlent Með sömu óásættanlegu kröfurnar Erlent Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Innlent Vilja ný og öruggari bílastæði á samningslausu landi gróðrarstöðvar Innlent Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Innlent Kalla út snjóruðningstæki og bændur koma búfé í skjól Innlent Fleiri fréttir Nóttin róleg hjá björgunarsveitum Turnarnir svínvirka en fegrunaraðgerðir í farvatninu „Norðan óveður á landinu í dag“ Fundaði með borginni: „Hef upplifað ýmislegt en aldrei svona grimmd“ „Beðið um leyfi fyrir átta þúsund manns“ Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Fundað vegna örtraðarinnar í höllinni Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Kalla út snjóruðningstæki og bændur koma búfé í skjól Vilja ný og öruggari bílastæði á samningslausu landi gróðrarstöðvar Óveður, yfirlið á tónleikum og málahali Ákváðu að stöðva ekki tónleikana: „Þá fyrst hefði skrattinn hitt ömmu sína“ Hvergi af baki dottinn og fer með áminninguna fyrir Landsrétt Flutt á sjúkrahús eftir bílslys á Háaleitisbraut „Yfirgnæfandi líkur“ á að Oscar fái íslenskan ríkisborgararétt Útskrifaður samdægurs eftir hnífaárás á Húsavík Gæti komið til lokana á vegum Selfosskirkjugarður að fyllast Í haldi grunaður um að hafa valdið alvarlegum áverkum Ungmenni réðust á varnarlaust fórnarlamb í skógræktinni á Akranesi Brottvísun Oscars frestað Segir vegið að rétti fatlaðra við uppbyggingu á Fannborgar- og Traðarreit Veitingamaður með langan brotaferil hlaut þunga sekt Faðir bræðranna sem létust segir úrræði gegn fíkn rjúkandi rúst Áminning Höskuldar stendur Þarf ekki að víkja úr dómsal: „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“ Frá Goðafossi að Gróttuvita með hundrað kíló í eftirdragi Slæmt að fá hret á varptíma Verða boðaðir á fund lögreglu Lögregla boðar tónleikahaldara á sinn fund Sjá meira