Umboðsmenn fá um 50 ný mál á mánuði 12. desember 2009 06:15
Umboðsmenn viðskiptavina hjá viðskiptabönkunum þremur fá samtals um fimmtíu mál á mánuði að meðaltali til úrlausnar þar sem viðskiptavinur bankans gerir athugasemdir eða óskar eftir upplýsingum vegna afgreiðslu bankans á málum viðkomandi. Þetta kemur fram í svörum um starfsemi umboðsmannanna í kjölfar fyrirspurna Fréttablaðsins. „Krafan um jafnræði er sterk og það virðist sem mönnum þyki bærilegra að sætta sig við erfiða niðurstöðu ef þeir hafa vissu um að hún sé í takt við það sem aðrir fá," segir Brynhildur Georgsdóttir, umboðsmaður viðskiptavina Arion banka. Hún segir viðskiptavini yfirleitt óska staðfestingar á því að unnið sé í samræmi við viðurkennt verklag og að niðurstaða sé í samræmi við það sem aðrir eigi kost á. „Verkefnin eru mjög ólík, það eru lánamál einstaklinga og fyrirtækja, fjárvarsla og innlán, greiðslumiðlun, kvartanir um starfsemina af ýmsu tagi og fleira," segir Eggert Sverrisson, umboðsmaður viðskiptavina hjá Landsbankanum. Sumir kvarti yfir þjónustu starfsmanna, fit-kostnaði, þjónustukostnaði, upplýsingagjöf og fleiru. Umboðsmönnum bankanna þriggja hafa borist samtals 560 mál á síðastliðnu ári. Málin voru 211 hjá Íslandsbanka frá 1. október í fyrra, og 57 í Arion banka, áður Kaupþingi, á síðustu tólf mánuðum. Málin voru 292 hjá Landsbankanum frá 1. febrúar þegar umboðsmaður bankans tók til starfa. Aðeins í einu tilviki hefur að mati umboðsmannanna ekki verið tekið nægilegt tillit til athugasemda þeirra. Umboðsmaður hjá Landsbankanum þurfti að eigin sögn í einu tilviki að skjóta „alvarlegum ágreiningi" við stjórnendur bankans til bankastjóra. Eftir fund bankastjóra með stjórnendum var málinu lokið með viðunandi hætti að mati umboðsmanns. Í öðrum tilvikum þar sem umboðsmenn hafa gert athugasemdir sem átt hafa við rök að styðjast, til dæmis um brot á verklagsreglum, hefur verið brugðist við athugasemdunum með viðeigandi hætti, að mati umboðsmannanna. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira