Fjölgun brota áhyggjuefni segir dómsmálaráðherra 23. júlí 2009 03:30 Tíu innbrot eru framin dag hvern miðað við fjölda innbrota fyrstu sex mánuði ársins. Myndin er sviðsett.
Innbrotum sem skráð hafa verið hjá lögregluembættum landsins fjölgaði um 78 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Alls voru 1.837 innbrot framin á tímabilinu, sem jafngildir því að tíu innbrot séu framin daglega. Þá hefur þjófnaðartilvikum fjölgað um helming, úr 1.613 í 2.440, á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tímabili eru skráð umferðarlagabrot hjá lögreglu um tíu prósentum færri samanborið við sama tímabil í fyrra. Skráðum hraðakstursbrotum fækkar um 4,6 prósent, akstri gegn rauðu ljósi um þriðjung og ölvunarakstri um tæplega 29 prósent. „Fjölgun brota er auðvitað áhyggjuefni," segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Starfsmenn dómsmálaráðuneytisins hafa ekki greint hvers vegna mikil aukning sé í sumum brotaflokkum en skráðum tilvikum fækki í öðrum. Því vilji hún ekki tjá sig um hvort þessar tölur endurspegli áhrif niðurskurðar undanfarið. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að vissulega sé hægt að túlka þessar tölur þannig að almennt eftirlit lögreglu sé minna nú en áður. Tölurnar megi þó einnig túlka þannig að áherslur lögreglu séu ekki endilega þær að ná sem flestum brotlegum ökumönnum. Eðlilegra sé að mæla árangur lögreglu af umferðareftirliti í til dæmis slysatölum.- bj
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira