Borginni tókst að skera niður um 2,3 milljarða 12. mars 2009 13:48 Frá borgarstjórn Reykjavíkur.
Tillaga að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 var lögð fram í borgarráði í dag. Endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 hófst strax í byrjun janúar með það að markmiði að mæta 2,3 milljarða króna hagræðingarkröfu. Í fréttatilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra kemur fram að á þriðja þúsund starfsmanna hjá Reykjavíkurborg tóku þátt í vinnu við endurskoðun fjárhagsáætlunar. Fram hafi komið um 1.500 hugmyndir frá starfsfólki um hagræðingu í rekstri borgarinnar. Af þessum hugmyndum hafi orðið til 300 umbótaverkefni, sem séu þegar komin í farveg. Stór hluti þeirra sé þegar kominn með fjárhagsleg markmið sem birtist í tillögu að endurskoðun fjárhagsáætlunar. Í tilkynningunni frá Reykjavíkurborg kemur fram að sett markmið við endurskoðun fjárhagsáætlunar hafi náðst, það er að hagræða um rúma 2,3 milljarða króna í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun og sameiginlegan vilja borgarstjórnar um að standa vörð um grunnþjónustu Reykjavíkurborgar, störf starfsmanna og gjaldskrár í samræmi við aðgerðaráætlun borgarstjórnar frá 7. október síðastliðnum. „Fyrir tilstuðlan frábærs starfsfólks Reykjavíkurborgar hafa markmið um að standa vörð um grunnþjónustu borgarinnar, störf starfsfólks og gjaldskrár náðst. Það er nýmæli í íslenskri stjórnsýslu að svo margt starfsfólk komi að vinnu við endurskoðun fjárhagsáætlunar og fái tækifæri til að leggja sitt af mörkum við að gera borgarreksturinn sem hagkvæmastan. Þetta minnir okkur á að það er allt hægt þegar allir leggjast á eitt," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri af þessu tilefni.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira