Fé aldrei lagt inn á barnlandsreikning 12. mars 2009 11:56 Félag ábrygra foreldra á Akureyri sökuðu Önnu Hermínu um að hafa staðið fyrir ólöglegri söfnun á Barnalandi.is
Anna Hermína Gunnarsdóttir, sem er ein þriggja kvenna sem hafa verið kærðar af Félagi ábyrgra foreldra á Akureyri, segist ekkki hafa notið persónulegs ávinnings af söfnun sem hún kom af stað á Barnalandi í mars á síðasta ári. Félag ábyrgra foreldra á Akureyri hafa kært hana auk Sigríðar Björnsdóttur, forsvarmanns Blátt Áfram, fyrir að hafa staðið ólöglega að fjársöfnun vegna máls sem kom upp í Kompási á síðasta ári. Þá hefur móðir, sem sagði barnsföður sinn hafa misnotað dóttur sína, verið kærð fyrir fjársvik, en þess má geta að nafn hennar var aldrei gert kunnugt í umfjöllun Kompás um málið. Tildrög málsins má finna í umfjöllun Kompás í mars á síðasta ári. Þá sagði móðir sögu sína og hélt því fram að barnsfaðir sinn hefði misnotað dóttur þeirra. Hún var síðan beitt dagsektum fyrir að brjóta gegn umgengisrétti föðursins. Anna Hermína sendi Vísi.is yfirlýsingu í dag en þar stendur orðrétt: Vegna umfjöllunar á fréttavefnum VISIR.IS þann 10. mars s.l., um meinta kæru félags ábyrgra foreldra á Akureyri á hendur mér og fleiri nafngreindum aðilum, þá vil ég taka fram að umrædd frétt er byggð á misskilningi. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri er ekkert slíkt mál þar til rannsóknar, enda enginn grundvöllur fyrir slíkri kæru eins og lýst hefur verið, eða hvað þá opinberrar málshöfðunar. Hin meinta kæra og frétt af henni sem birtist á VISIR.IS, eru hluti af rógsherferð sem hrundið var af stað til að sverta mannorð ákveðinna einstaklinga með það að markmiði að ná fram hefndum vegna persónulegra deilna. Mál þetta á því ekkert erindi í fjölmiðla og mjög miður að útbreiddur fréttavefur eins og VISIR.IS sem væntanlega vill teljast ábyrgur fréttaflytjandi, hafi birt um það fréttir án þess að bakgrunnur málsins hafi verið kannaður ítarlega. Þá er einnig mjög leitt til þess að vita að félagsskapur sem ber nafnið „Ábyrgir foreldrar" skuli notaður í þeim tilgangi að vinna að persónulegum markmiðum eins aðila með slíkum rógburði sem þessum. Því miður verð ég að segja að þessi málflutningur hefur að einhverju leyti haft þau áhrif sem stefnt var að. Af umfjöllun vefsins má skilja að ég hafi verið að notfæra mér málið til að hafa af því fjárhagslegan ávinning. Þessar ásakanir eru alrangar og algerlega úr lausu lofti gripnar. Ég hafði engan ávinning af þessu máli, hvorki persónulegan eða fjárhagslegan, enda kom aldrei neitt fé inn á þann reikning sem talað er um að stofnaður hafi verið í mínu nafni og honum var lokað sama dag og hann var stofnaður. Með von um ábyrgari fréttaflutning í framtíðinni óska ég eftir að þetta verði birt á jafn áberandi stað og „fréttin" sem vitnað er til. Athugasemd frá Vísi: Fréttavefurinn hafði kæruna undir höndum og fékk staðfest að hún var lögð inn til sýslumanns. Aldrei kom fram í umfjöllun málsins að það væri í rannsókn hjá lögreglunni á Akureyri, heldur einmitt að kæran hefði verið í meðferð hjá sýslumanninum á Akureyri í þrjá mánuði.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Sjá meira