Þingrof líklega tilkynnt á morgun 12. mars 2009 16:03 Jóhanna Sigurðardóttir tilkynnir væntanlega þingrof á morgun.
Afgreiðsla mála hefur gengið hratt fyrir sig á Alþingi í dag, enda mikil áhersla lögð á að afgreiða sem flest mál áður en þing lætur af störfum fyrir kosningar. Þannig hafa þingmenn lokið fyrstu umræðu um þrettán mál og umræður standa nú yfir um hið fjórtánda. Annarri umræðu er lokið í tveimur málum og þingið hefur afgreitt eina þingsályktunartillögu. Að auki hafa ráðherrar svarað fyrirspurnum þingmanna og ein utandagskrárumræða hefur farið fram. Líklegt er talið að þingrof verði tilkynnt á morgun. Þetta er allt annar hraði en verið hefur á afgreiðslu mála á Alþingi undanfarna daga. En í gær ræddu þingmenn til dæmis í tólf klukkustundir um stjórnlagafrumvarpið, sem reyndar er flutt í mikilli andstöðu við þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Leiðtogar stjórnarflokkanna funduðu í hádeginu í dag með forystumönnum annarra flokka á þingi, þar sem reynt var að komast að samkomulagi um þinglok. En í dag rann upp hámarksfrestur fyrir forsætisráðherra til að tilkynna um þingrof. Forystumönnum flokkanna tókst ekki að innsigla samkomulag á fundinum og hefur annar fundur verið boðaður um framgang mála á Alþingi klukkan fimm. Sjálfstæðismenn hafa boðið upp á samkomulag um stjórnlagafrumvarpið en ekki er víst að forystumenn stjórnarflokkanna og forysta Framsóknarflokksins fallist á tillögur Sjálfstæðismanna. Líklegt er að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tilkynni um þingrof á þingfundi á morgun en þingstörfum er lokið í dag. Þá verði jafnframt ákveðið hvað þingið sitji lengi fram að kosningum og hvaða mál fái afgreiðslu áður en þingmenn fara heim. Um leið og forsætisráðherra hefur tilkynnt um þingrof, verður hægt að hefja utankjörfundar atkvæðagreiðslu.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira