Sonur Escobars biðst afsökunar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. nóvember 2009 08:53 Pablo Escobar.
Sonur kókaínbarónsins Pablo Escobar segist harma afbrot föður síns. Vitað er að síðasta símtal Escobars heitins, áður en lögreglumenn skutu hann til bana á húsþaki í Medellin árið 1993, var til sonar hans, Juan Pablo Escobar, sem flúði til Kólumbíu ári síðar. Ekki hefur mikið farið fyrir syninum og ekki hefur hann haldið áfram í fjölskyldubransanum. Þvert á móti lifir hann einföldu lífi sem arkitekt í Buenos Aires í Argentínu og gegnir nafninu Sebastian Marroquin. Óvænt steig hann þó fram nýlega og bað fjölskyldur fjölmargra fórnarlamba föður síns afsökunar. Þetta gerir Escobar í heimildamyndinni Syndir föður míns, Sins of my Father, en þar segir hann sögu föður síns og ræðir meðal annars við syni tveggja þekktustu fórnarlamba kókaínbarónsins en það voru dómsmálaráðherrann fyrrverandi, Rodrigo Lara Bonilla, og forsetaframbjóðandinn Luis Carlos Galan. Synirnir segjast þakklátir fyrir afsökunarbeiðnina og loks hafi þeir fundið sátt. Pablo heitinn Escobar stjórnaði einum öflugustu glæpasamtökum veraldar, Medellin-hringnum, og voru auðæfi hans metin á þrjá milljarða dollara af tímaritinu Forbes, upphæð sem ef til vill þykir ekki svimandi nú á dögum en var það sannarlega á sínum tíma. Medellin-hringurinn bar ábyrgð á þúsundum morða og ekki skorti peningana. Escobar yngri segir til dæmis frá því að faðir hans hafi valið 200 skepnur af sjaldgæfum tegundum, látið handsama þær og flytja á búgarð sinn, Hacienda Napoles.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Neitað um lausn gegn tryggingu Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Fleiri fréttir Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Sjá meira