Leiðin sem níðingurinn ók 20. desember 2009 19:28
Fjölda mannslífa var stofnað í hættu þegar ökuníðingur á stolnum jeppa reyndi að stinga sex lögreglubíla af. Hann ók á ofsahraða á móti umferð á Reykjanesbraut í Garðabæ en eftirförin endaði með bílveltu í Kópavogi. Hægt er að sjá leiðina sem maðurinn ók í myndbandinu sem fylgir þessari frétt. Eftirförin hófst í Hafnarfirði nánar tiltekið á Hjallahrauni þar sem lögreglan kom auga stolna jeppann en í honum var ungur karl og ung kona. Maðurinn sem var undir stýri reyndi að stinga lögregluna af og ók áleiðis þvert yfir Fjarðarhraun og inn á Bæjarhraun. Þaðan ók hann öfugum megin inn á hringtorg við Kaplakrika á móti umferð og þaðan upp Flatahraun. Þaðan komst hann niður á Reykjanesbraut en þar ók hann nokkur hundruð metra á móti umferð á rúmlega 120 kílómetra hraða. Eftir að hafa komist á réttan vegarhelming ók maðurinn upp á Arnarnesbrú og niður Smárahvammsveg, en þaðan inn í bílastæðahús við Smáralind. Þar sem hann ók á bíl. Hann hélt hins vegar áfram út úr húsinu og ók Fífuhvammsveg austur að hringtorginu við Lindarveg þar sem hann ók á annan bíl. Ekki dugði það til að stöðva för mannsins sem ók þess í stað upp Hlíðardalsveg þar sem lögreglubíl var ekið utan í jeppann án árangurs. Skömmu síðar var öðrum lögreglubíl ekið utan í jeppann með þeim afleiðingum að hann valt við Fífuhvammsveg. Ökuníðingurinn er um þrítugt og hefur margoft komið við sögu lögreglu. Hann var í annarlega ástandi en hlaust ekki alvarlega áverka frekar vinkona hans sem var með honum í bílnum. Tveir lögreglumenn þurftu hins að leita á slysadeild. Það er í raun ótrúleg heppni að alvarleg slys hafi ekki orðið miðað við ökulag mannsins. En auk jeppans sem er ónýtur skemmdust fjórir lögreglubílar mismikið á meðan eftirförinni stóð auk fólksbílanna tveggja sem ekið var á.
Tengdar fréttir Ökuníðingurinn ók á sex bíla Maðurinn sem var handtekinn fyrr í dag eftir að lögregla veitti honum eftirför ók á fjórar bifreiðar áður en hann velti bifreiðinni sem hann ók. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Hann var í annarlegu ástandi. Tveir lögreglumenn leituðu til slysadeildar eftir eftirförina. 20. desember 2009 16:40 Mikil hætta stafaði af ökumanni á stolnum bíl Ökumaður á stolnum bíl var handtekinn í grennd við verslunarmiðstöðuna Smáralind nú fyrir skömmu. Lögregla veitti manninum eftirför sem ók á móti umferð. Mikil hætta stafaði af manninum, að sögn lögreglu. 20. desember 2009 13:49 Mest lesið Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Erlent Kallar þjóðaröryggisráð saman Innlent Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Innlent Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Erlent Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Innlent Hættir sem þingflokksformaður Innlent Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Erlent Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Erlent Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Innlent Fleiri fréttir „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Eftirköstin af gjaldþroti Play og friðaráætlun á Gasa Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Hættir sem þingflokksformaður Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Hópslagsmál og hundaárás Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Sjá meira
Ökuníðingurinn ók á sex bíla Maðurinn sem var handtekinn fyrr í dag eftir að lögregla veitti honum eftirför ók á fjórar bifreiðar áður en hann velti bifreiðinni sem hann ók. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Hann var í annarlegu ástandi. Tveir lögreglumenn leituðu til slysadeildar eftir eftirförina. 20. desember 2009 16:40
Mikil hætta stafaði af ökumanni á stolnum bíl Ökumaður á stolnum bíl var handtekinn í grennd við verslunarmiðstöðuna Smáralind nú fyrir skömmu. Lögregla veitti manninum eftirför sem ók á móti umferð. Mikil hætta stafaði af manninum, að sögn lögreglu. 20. desember 2009 13:49