Bretar hefðu gripið til aðgerða gagnvart Straumi 3. apríl 2009 04:15 Mikið mæddi á viðskiptaráðherra á fundi viðskiptanefndar í gær. Fréttablaðið/anton
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra telur ekki að ríkið hafi skapað sér skaðabótaskyldu með yfirtöku á Straumi. Kröfuhafar hafi ekki verið hlunnfarnir á nokkurn hátt. Þetta kom fram á fundi viðskiptanefndar í gær en þar sátu fyrir svörum þeir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, og Gunnar Haraldsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, ásamt Gylfa. Þeir voru meðal annars spurðir hvort þeir teldu jafnræði í því hvernig brugðist var við vanda SPRON og Straums annars vegar og Saga Capital og VBS fjárfestingarbanka hins vegar. Gylfi sagði að hefði skilanefnd ekki tekið Straum yfir um helgina hefði breska fjármálaeftirlitið gripið til aðgerða vegna útibús bankans þar í landi strax á mánudeginum. Jón Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskaði eftir fundinum og segist telja að honum loknum að yfirvöld hafi fyrst og fremst verið að hugsa um hagsmuni stórra innistæðueigenda hjá SPRON og Straumi, eins og Íbúðalánasjóðs, þegar þeir tóku bankana yfir. Hann segist alltént ekki hafa fengið skýr svör við því af hverju harðasta ákvæði neyðarlaganna var beitt gegn bönkunum tveimur og þeir teknir yfir. „Af hverju fékk hin venjulega löggjöf og markaðsstarfsemin ekki að hafa sinn framgang? Þeirri spurningu svöruðu þremenningarnir ekki beint,“ segir Jón í samtali við Fréttablaðið eftir fundinn. „En þeir töluðu þó þannig að þeir hefðu fyrst og fremst verið að hugsa um hagsmuni stórra innistæðueiganda þannig að þeir sætu ekki uppi með fé sitt bundið inni í stofnununum svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir. Og þá liggur alveg í augum uppi hvað þeir eru að tala um; það er verið að tala um Íbúðalánasjóð og kannski einhverja lífeyrissjóði. Mér sýnist það vera þetta sem hafi knúið þá áfram í þessar aðgerðir.“ Hann segist ekki hafa fengið neina réttlætingu á því að Saga Capital og VBS hafi fengið aðstoð í sínum vanda meðan SPRON og Straumur hafi verið teknir yfir. jse@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira