Sex ný svínaflensu tilfelli Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. júlí 2009 10:33 Haraldur Briem er sóttvarnarlæknir.
Sex tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1) síðustu tvo sólarhringa og hefur hún því greinst hjá samtals 29 einstaklingum frá því í maí síðastliðnum. Um er að ræða tvo 15 ára gamla pilta sem komu til landsin 19. júlí síðastliðinn frá Gautaborg en þar höfðu þeir tekið þátt í fótboltamóti, 17 ára gamla stúlku frá Spáni sem tekið hafði þátt í skátamóti hér á landi, 17 ára gamla stúlku sem ekki hefur ferðast erlendis og óljóst er um tengsl við smitaða einstaklinga, 27 ára gamlan karlmann og 27 ára gamla konu. Hvorugt þeirra tveggja síðastnefndu hefur ferðast erlendis og óljóst er um tengsl þeirra við smitaða einstaklinga. Enginn þessara sex sjúklinga var með alvarleg einkenni og eru þeir allir á batavegi. Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra og Sóttvarnarlæknir vilja vekja athygli á því að framundan er mesta ferðamannhelgi ársins og mikið um mannamót. Með hliðsjón af því að inflúensan er tiltölulega væg um þessar mundir hafi engin tilmæli verið gefin um samkomubann. Engu að síður sé rétt að vekja athygli á því að allir sem eru með inflúensulík einkenni eigi að halda sig heima í sjö daga frá upphafi þeirra, fara vel með sig og forðast að smita aðra. Þótt inflúensan sé yfirleitt væg sé nauðsynlegt að hafa í huga að fólk með undirliggjandi sjúkdóma getur verið viðkvæmari fyrir henni en þeir sem hraustir eru og fengið alvarleg einkenni.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira