121 námsmenn enn á atvinnuleysisskrá 12. október 2009 03:00 Atvinnuleysisskráning. Atvinnulausir eiga möguleika á að fá að stunda hlutanám án þess að missa bætur en verða að gera samning um það við Vinnumálastofnun. Fréttablaðið/GVA
Vinnumálastofnun hefur sent bréf til 121 manns sem er bæði á atvinnuleysisskrá og skráður í nám án þess að hafa samið um það við stofnunina. Undanfarna daga hefur verið unnið að því að samkeyra atvinnuleysisskrána við nemendaskrár fjörutíu og þriggja háskóla og framhaldsskóla í landinu. Til þess að atvinnulausir megi vera í námi án þess að missa rétt til bóta þurfa þeir að semja skriflega við Vinnumálastofnun. Fullt nám er ekki heimilað en það er hluti af svokölluðum vinnumarkaðsúrræðum fyrir atvinnulausa að þeir geti stundað hlutanám, samhliða atvinnuleit. Baldur Aðalsteinsson, verkefnisstjóri hjá Vinnumálastofnun, segir að mun fleiri nöfn hafi komið í ljós við samkeyrsluna. Langflestir hafi hins vegar verið með svokallaðan námssamning við stofnunina og því í fullum rétti. Baldur segir að í námssamningum sé yfirleitt miðað við 33 prósenta nám sem hámark, en reglurnar eru nokkuð matskenndar og sveigjanlegar. Algengt er að fólk sæki 1-2 námskeið í háskóla eða kvöldskóla án þess að það skerði bætur. Samkeyrslunni er aðeins lokið að hluta. Baldur segir ljóst að mun fleiri mál eigi eftir að koma upp. „Við setjum okkur í samband við þessa einstaklinga og fáum hjá þeim úrskýringar á þessu. Í kjölfarið munu væntanlega einhverjir detta af atvinnuleysisskránni en þessi stjórnsýsla er tímafrek. Það munu líða vikur þangað til við vitum hvað það eru í raun og veru margir sem hafa verið að reyna að fá bætur með fullu námi.“ Eins og Fréttablaðið sagði frá 14. september voru 345 háskólastúdentar í lánshæfu námi skráðir atvinnulausir á síðasta skólaári og þáðu atvinnuleysisbætur sem þeir áttu ekki rétt á. 15. september lá fyrir að 135 voru án námssamninga. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að óvíst sé til hvaða aðgerða verður gripið til viðbótar gagnvart þeim hópi. Reglugerð þar sem skýrt var kveðið á um að ekki mætti stunda lán á bótum var ekki sett fyrr en í janúar á þessu ári, eftir að kennsla hófst á vormisserinu. Margir úr þeim hópi hafi því haft einhverjar málsbætur og óvíst um þýðingu þess að fara í frekari aðgerðir. Stofnunin einbeiti sér að því að hafa eftirlit með þeim sem eru skráðir í nám á þessu skólaári enda sé grundvöllur fyrir eftirlitsaðgerðum nú mun traustari en áður.
Mest lesið Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Innlent Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Erlent Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Erlent „Ertu kannski Íslendingur?“ Lífið Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Innlent Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Innlent Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Erlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjá meira