VG vilja einkavæða bílastæðahús borgarinnar 3. september 2009 14:43 Þorleifur Gunnlaugsson oddviti VG í borginni.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykkti tillögu VG á fundi borgarráðs í dag um könnun á kostum þess að bílastæðahús borgarinnar verði seld. Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Fulltrúar Samfylkingarinnar bókuðu hinsvegar fyrirvara við málið og sátu hjá. Í bókun Samfylkingarinnar segir að augljóst sé að þetat gæti leitt til stórhækkunar á bílastæðagjöldum í borginni. Þá sé vandséð hvernig hægt verði að aðskilja stefnu um verðlagningu og aðgengi að miðborginni frá rekstri bílastæðahúsa. Jafnframt séu augljós tengsl milli verðlagningar og aðgengi að bílastæðahúsum og öðrum bílastæðum á jörðu niðri. „Spurningar vakna því hvort þau eigi einnig að selja. Vegna mikilvægis málsins og því hversu viðkvæmt það er þarf Reykjavíkurborg jafnframt að nálgast athugun á því með alla þá hagsmuni sem málefninu tengjast undir. Það felur í sér að meta öll hugsanleg áhrif og hliðaráhrif til langs og skamms tíma við þessa breytingur og að hafa þurfi ítarlegt samráð við verslunarrekendur og íbúa áður en nokkur skref eru stigin í þessa veru," segir í bókuninni. Þorleifur Gunnlaugsson oddviti VG í borginni hafði samband við Vísi en hann segir ástæðu þess að flokkurinn vilji láta kanna þennan kost sé fyrst og síðast tengt fyrirséðum niðurskurði á næsta ári. „Staðan er sú að okkur sýnist við vera að sigla í fimm milljarða mínus miðað við þriggja ára áætlunina og það verður að fara í verulegan niðurskurð," segir Þorleifur en hann segir velferðar- og menntamál vera í forgangi hjá VG. „Þá horfum við í kringum okkur á það sem mætti skera niður eða selja. Þá sjáum við þennan möguleika en að sjálfsögðu er sá fyrirvari settur að hagsmunir bílaeigenda verði í fyrirrúmi, það er í okkar greinargerð."
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira