Yfir 2.000 fyrirtæki hafa verið stofnuð frá hruninu 3. september 2009 06:30 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Hér á landi hafa að meðaltali verið stofnuð 216 ný fyrirtæki á mánuði það sem af er þessu ári. Þetta er sambærilegur fjöldi fyrirtækja og var stofnaður fyrir efnahagshrunið í fyrra. Átta fyrstu mánuði ársins voru stofnuð 1.731 fyrirtæki, aðeins 38 fyrirtækjum færra en á sama tímabili árið 2008. Þetta sýnir ítarleg úttekt sem CreditInfo vann fyrir Fréttablaðið um stofnun nýrra fyrirtækja frá árinu 2005. Í tölum CreditInfo kemur fram að alls hafa 2.369 ný fyrirtæki verið nýskráð í hlutafélagaskrá eftir hrunið í byrjun október. Þar af voru 215 stofnuð í október, 197 í nóvember og 226 í desember. CreditInfo tekur fram í greiningu sinni að í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu og í ljósi þess fjölda fyrirtækja sem þegar hefur farið í þrot á árinu megi telja líklegt að forsendur við stofnun fyrirtækja séu allt aðrar í samanburði við fyrri ár. Er vísað í fjölda fyrirtækja sem bankar hafa nú þegar yfirtekið eða sem hafa fært rekstur yfir í nýjar kennitölur. Spurður hvort svokallað kennitöluflakk kunni að búa að baki segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, að þótt SVÞ hafi gagnrýnt kennitöluflakk í gegnum tíðina þá skuli hafa hugfast að allt hafi breyst. „Menn gera sér grein fyrir því að ævistarfið, stutt eða langt, fór með hruninu. Í kringum sjötíu prósent allra starfandi fyrirtækja í landinu voru með erlend lán. Það þýðir tvöföldun skulda yfir nótt. Kannski eru þetta varúðarráðstafanir ef illa færi, að hafa kennitölu til að hefja rekstur að nýju." Hann minnir á að í raun sé það ríkið sem hafi gengið á undan í kennitöluflakki og nefnir þar breytingar innan bankakerfisins sem dæmi. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það jákvæðar fréttir að Íslendingar skirrist ekki við að stofna ný fyrirtæki. Þetta sé til dæmis til vitnis um að þeir sem misst hafa vinnuna séu að koma undir sig fótunum að nýju. „Á bak við þetta liggur örugglega endurskipulagning fyrirtækja, sameiningar og fleira," segir Vilhjálmur. Flest fyrirtæki sem stofnuð hafa verið í ár eru á sviði verslunar og þjónustu auk framleiðslu. Helst má sjá mikla fækkun í stofnun fyrirtækja í fjármálastarfsemi, eða svokallaðra eignarhaldsfélaga. Frá miðju síðasta ári hafa 834 fyrirtæki verið úrskurðuð gjaldþrota samanborið við 669 tólf mánuði þar á undan, sem er fjórðungsaukning. Þetta er þó aðeins lítið hlutfall heildarfjölda fyrirtækja en á Íslandi eru skráð tæplega 32 þúsund fyrirtæki í hlutafélagaskrá. - shá
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Sjá meira