Blása til mótmælatónleika vegna Ingólfstorgs og Nasa Lóa Pind Aldísardóttir. skrifar 3. september 2009 13:10 Kassabílarallý á Ingólfstorgi. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Áhugahópur um björgun Ingólfstorgs hefur blásið til baráttutónleika sem verða haldnir á torginu á laugardaginn. Þeir héldu blaðamannafund í hádeginu. Áform um að byggja fimm hæða hótel við Vallarstræti og flytja þess vegna tvö hús yfir strætið og inn á Ingólfstorg og rífa Nasa hafa verið í deiglunni í allmörg ár. Metfjöldi athugasemda barst skipulagi borgarinnar þegar tillagan var auglýst fyrir rösku ári. Athugasemdirnar voru að einhverju leyti teknar til greina í nýrri deiliskipulagstillögu sem nú er í auglýsingu - stærsta breytingin er líklega að hætt er við bílakjallara undir hótelinu sem hefði þýtt töluverða umferð frá Aðalstræti. Höfundur tillögunnar, Björn Ólafs arkitekt, sagði í grein í Morgunblaðinu í byrjun vikunnar að hún væri gerð til að styrkja heildarmynd sögulegra húsa við Ingólfstorg og byggja um leið hótel framan við stóra brunagafla sem hefðu lengi blasað þar við. Sú hlið torgsins hafi verið lýti á miðborginni. Gömlu húsin tvö, Hótel Vík og Brynjólfsbúð, sem flytja á yfir Vallarstræti yrðu varðveitt, gerð upp að utan og innan. Með þessu batni ásýnd Ingólfstorgs, umferð minnki og grunnflötur torgsins stækki. Áhugahópurinn um Björgun Ingólfstorgs er ekki sannfærður, þar sem Björn Brynjólfur Björnsson hafði orð fyrir hópnum. Hópurinn fékk arkitektastofuna Glámu Kím til að leggja mat sitt á deiliskipulagstillöguna og var skýrsla þeirra kynnt á fundinum. Frestur til að gera athugasemdir við skipulagið rennur út 11. september. Baráttutónleikarnir verða klukkan tvö á laugardaginn.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Sjá meira