Loftslagsviðræður á síðasta snúningi 5. nóvember 2009 01:45 Afhentu grænar vekjaraklukkur Yvo de Boyer, framkvæmdastjóri loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem er maðurinn í jakkafötunum á myndinni, fékk í gær afhenta græna vekjaraklukku frá baráttusamtökum sem vilja minna á að tíminn sé að renna út.nordicphotos/AFP
Fulltrúar Afríkuríkja vilja að auðug ríki útskýri hvernig þau hugsi sér að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, náist um það bindandi samkomulag á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í næsta mánuði. Óttast er að ekkert verði úr slíku samkomulagi. Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær engar líkur á því að fyrir áramót næðist neitt samkomulag sem fæli í sér lagalega skuldbindingu, eins og Evrópuríki hafa barist fyrir. Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði hins vegar erfitt að koma viðræðum af stað á ný ef samkomulag næðist ekki áður en fresturinn til þess rennur út í desember. Fulltrúar frá 192 ríkjum sitja þessa dagana á Spáni bak við luktar dyr við að berja saman samkomulagsdrög sem leggja megi fyrir ráðstefnuna í desember. Fundarhöld féllu niður á þriðjudag þegar fulltrúar Afríkuríkja gengu út til að leggja áherslu á kröfur sínar um að auðugu ríkin leggi meira af mörkum. „Ég hef ekki séð neinar raunverulegar vísbendingar um að þau ætli að auka metnað sinn,“ sagði Lumumba Di-Aping, fulltrúi frá Súdan, sem er formaður samninganefndar 135 þróunarríkja, þar á meðal Afríkuríkjanna fimmtíu. „Við þurfum að sjá hvað gerist.“ Fundarhöldin héldu þó áfram í gær, þegar auðugu ríkin hófu að gera grein fyrir því hvort samdrætti í losun yrði náð með því að draga raunverulega úr losuninni eða hvort þau ætluðu að kaupa sér losunarkvóta. Þróunarlönd krefjast þess að iðnríkin dragi á næsta áratugi undanbragðalaust úr losun um fjörutíu prósent, frá því sem var árið 1990, til þess að draga úr því tjóni sem loftslagsbreytingar geta valdið víðs vegar um jörðina. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir öllu skipta að þessar viðræður skili árangri svo samkomulag náist á ráðstefnunni í desember. Ef ekkert sé að gert muni ástandið versna. „Fólksflutningar verða vegna meiri öfga í veðurfari, svo sem langvarandi þurrka, fárviðris og skógarelda,“ sagði Ban á Grikklandi í gær, þar sem hann ræddi við blaðamenn. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira