Langþráður sigur repúblikana 5. nóvember 2009 06:00 Vonbrigði í Maine Þau gátu ekki leynt vonbrigðum sínum eftir að kjósendur í Maine felldu lög um hjónaband samkynhneigðra.fréttablaðið/AP
Demókratar töpuðu ríkisstjórakosningum í Virginíu og New Jersey, sem haldnar voru í gær. Robert Gibbs, fréttafulltrúi Bandaríkjaforseta, sagði þetta tap samt ekki segja neitt um stöðu Baracks Obama, því kosningarnar hefðu snúist að mestu um innanríkismálefni. Repúblikanar voru hins vegar hæstánægðir með sigrana, eftir að hafa misst bæði forsetaembættið á síðasta ári og meirihluta á þjóðþinginu í Washington árið 2006. Michael Steele, flokksformaður repúblikana, sagði úrslitin sýna að flokkurinn væri kominn á skrið á ný, hann hefði fundið rödd sína. Demókratar gátu hins vegar huggað sig við að ná þingsæti í New York-ríki af repúblikönum. Í Maine urðu síðan óvænt úrslit þegar kosið var um lög um hjónaband samkynhneigðra. Ríkisstjórinn og helstu leiðtogar ríkisþingsins voru fylgjandi lögunum, og áhrifamestu fjölmiðlar í ríkinu studdu þau einnig, en allt kom fyrir ekki: kjósendur felldu málið. Tillögur um að leyfa hjónaband samkynhneigðra hafa nú verið bornar undir kjósendur í 31 ríki Bandaríkjanna, og alls staðar verið felldar. Baráttumenn fyrir réttindum samkynhneigðra höfðu vonast til þess að þeirri þróun yrði snúið við í Maine.- gb
Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Innlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Fleiri fréttir Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Sjá meira