Magn geimrusls stefnir í óefni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. nóvember 2009 07:18 Hlunkur af undnum málmi sem óvænt skall til jarðar í Ástralíu.
Vísindamenn hafa töluverðar áhyggjur af auknu magni alls konar rusls í geimnum og áhrifum þess á geimferðir framtíðarinnar. Þróunin undanfarið bendir til þess að hættan á árekstrum eða alvarlegri nálægð geimfara við geimrusl muni aukast um 50 prósent næstu 10 árin og muni hafa aukist um 250 prósent árið 2059. „Tíminn til að gera eitthvað í málinu er núna,“ segir Hugh Lewis við verkfræðideild háskólans í Southhampton á Englandi en hann hefur rannsakað þróunina á þessum vettvangi. Hann bendir á að ruslið aukist jafnt og þétt og hættan með. Þarna er aðallega um að ræða alls kyns leifar af gömlum gervihnöttum, hluti sem brotnað hafa af geimskutlum og meira og minna allt sem jarðarbúar hafa skotið út í geiminn og hefur ekki komið niður aftur. Ekki er langt síðan tveir gervihnettir splundruðust þegar þeir skullu saman yfir Síberíu og auðvelt er að ímynda sér þann haug af svífandi drasli sem varð til við þann árekstur. Þetta þýtur svo umhverfis jörðina með 30.000 kílómetra hraða á klukkustund og þar af leiðandi langt í frá huggulegt að vera að koma á sama hraða úr gagnstæðri átt getur maður ímyndað sér. Bandaríkjaher segist hafa tök á að fylgjast með 800 gervitunglum í einu með árekstra í huga og muni 500 bætast við þá tölu innan skamms en Lewis telur það engan veginn nægjanlegt miðað við fjölda hluta á sporbaug og bendir á miðað sé við að fimm kílómetra fjarlægð kallist mikil nálægð í geimnum.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira