Týndi símanum og sogaðist inn í sakamál Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 23. ágúst 2009 16:24 Það getur haft óvæntar afleiðingar að týna símanum sínum, eins og Gyða Björg fékk að kynnast. Mynd/Anton Brink „
Ég týndi símanum mínum í bænum. Svo fór fólk að fá einhver skringileg SMS úr símanum mínum. Á sunnudagsnóttina var síðan farið að áreita einhverja hátt setta menn," segir Gyða Björg Sigurðardóttir, tvítugur Reykvíkingur. Hún varð fyrir því óláni að týna símanum sínum um síðustu helgi. Í vikunni fékk Gyða svo símhringingu frá lögreglunni þar sem henni var tilkynnt að hún hefði stöðu grunaðs í sakamáli eftir að síminn hennar hafði verið notaður til að hóta fólki. Hún var í kjölfarið boðuð í skýrslutöku. „Þeir spurðu mig hvort ég væri að standa í einhverjum hótunum. Ég svaraði því neitandi og útskýrði bara hvað hafði gerst, enda nota ég ekki slíkar aðferðir til að koma skoðunum mínum á framfæri," segir Gyða. Gyða segist ekki vita nákvæmlega hvað hinir óprúttnu aðilar sögðu í símann, en telur að hringt hafi verið í forstjóra íslenskra fyrirtækja. Hún telur að atvikið hafi greinilega blandast inn í umfangsmeiri rannsókn lögreglu. Gyða segir lögreglu þó hafa sýnt málinu skilning. „Ég var mjög fegin hvernig þetta gekk upp. Mér var mjög brugðið þegar löggan hringdi í mig - þetta var of lygilegt til að vera satt," segir Gyða, sem nú hefur látið loka gamla símkortinu og vonar að málinu sé þar með lokið.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Erlent Fleiri fréttir Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Sjá meira