Innlent

Samkeppni um styttu Tómasar

Tómas Guðmundsson
Gera á styttu af borgarskáldinu.
Tómas Guðmundsson Gera á styttu af borgarskáldinu.

Skipuð hefur verið forvalsnefnd og dómnefnd fyrir samkeppni um styttu af skáldinu Tómasi Guðmundssyni.

Í forvalsnefnd verða Helgi Kristjánsson. sem tilnefndur var af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur, Hafþór Yngvason, tilnefndur af innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur, og Þóra Sigurðardóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM).

Í dómnefnd eru borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon, tilnefndur af menningar- og ferðamálaráði, Sólveig Aðalsteinsdóttir, tilnefnd af innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur, og Bjarni Sigurbjörnsson, tilnefndur af SÍM.

Keppt er samkvæmt reglum SÍM.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×