Löggan í Eyjum hljóp uppi fíkniefnasala 30. desember 2009 12:02 Frá Vestmannaeyjum. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Lögreglan í Vestmannaeyjum hljóp í gærkvöldi uppi fíkniefnasala á þrítugsaldri sem kom með Herjólfi til Eyja með kókaín að andvirði tæplega einnar milljónar. Við reglubundið eftirlit með komu Herjólfs í gærkvöldi hafði lögreglan afskipti af ökumanni bifreiðar og farþega hennar vegna gruns um fíkniefnamisferli. Bifreiðin var færð á lögreglustöðina þar sem eigandi hennar, sem jafnframt var ökumaður hennar, samþykkti leit í henni. Þegar fíkniefnahundurinn Luna var að leita í bifreiðinni tók ökumaður bifreiðarinnar til fótanna og hljóp frá lögreglustöðinni. Lögreglumenn veittu honum eftirför og sáu hvar hann henti frá sér pakka á leiðinni. Maðurinn var síðan hlaupinn uppi eftir að hafa veitt honum eftirför austur Faxastíg og niður á Vestmannabraut þar sem hann var handtekinn og færður á lögreglustöðina. Í pakkanum reyndust vera 40 til 50 grömm af ætluðu kókaíni. Maðurinn viðurkenndi við skýrslutöku að eiga efnin og hafa ætlað þau til sölu í Eyjum. Farþegi sem í bifreiðinni var neitaði allri aðild að málinu. Áætlað söluandvirði efnisins er að sögn lögreglu milli 800 þúsund til ein miljón króna. Ökumaðurinn er jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann og farþeginn, sem báðir eru á þrítugsaldri, voru færðir í fangageymslu vegna rannsóknar. Skýrslutökum verður framhaldið í dag.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira