Þrír Litháanna áfram í varðhaldi 30. desember 2009 12:21
Þrír Litháanna sem ákærðir hafi verið mansalsmálinu svokallaða hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald. Ekki liggur fyrir hvort tveir aðrir verði áfram í varðhaldi en þeir verða leiddir fyrir dómara síðar í dag. Mikil öryggisgæsla er í héraðsdómi. Íslendingur er meðal ákærðu í mansalsmálinu en Ríkissaksóknari gaf út ákæru á hendur honum og fimm Litháum í morgun. Mennirnir eru allir ákærðir fyrir mansal gagnvart 19 ára stúlku en málið kom upp í október þegar stúlkan, sem er frá Litháen, trylltist um borð í flugvél á leið hingað til lands. Sagðist hún fórnarlamb mansals en viðamikil rannsókn fór strax í gang sem endaði með því að þrettán manns höfðu um tíma réttarstöðu sakbornings. Þar af voru sex Íslendingar. Stúlkan hefur frá því í október verið í öruggri umsjá og er enn talin í hættu. Líkt og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í fyrradag segist stúlkan samkvæmt heimildum fréttastofu hafa verið seld ítrekað í vændi í Litháen áður en hún kom til Íslands. Við skýrslutökur hafi hún sagt að sér hafi verið haldið nauðugri í íbúð í fjölbýlishúsi í fjóra mánuði seinni hluta síðasta árs. Litháarnir fimm tengjast innbyrðis en neita allir sök. Þeir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því skömmu eftir að málið kom upp. Byrjað var að leiða þá fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í morgun en eftir því sem fréttastofa kemst næst er meiri öryggisgæsla í kringum mennina en almennt gerist þegar menn eru leiddir fyrir dómara. Tveir lögreglumenn fylgja hverjum Litháa sem eru í handjárnum. Ekki er langt síðan fangi komst í fíkniefni inni á salerni Héraðsdóms Reykjaness, og því eru menn við öllu viðbúnir. Íslendingurinn sem ákærður er í málinu er eigandi verktakafyrirtækis sem Litháarnir störfuðu hjá.
Tengdar fréttir Íslendingur og fimm Litháar ákærðir í mansalsmálinu Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur sex karlmönnum, fimm Litháum og einum Íslendingi, fyrir mansal gagnvart 19 ára stúlku. Óskað hefur verið eftir áframhaldandi gæsluvarðahaldi Lithánna sem rennur út í dag. 30. desember 2009 10:24 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
Íslendingur og fimm Litháar ákærðir í mansalsmálinu Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur sex karlmönnum, fimm Litháum og einum Íslendingi, fyrir mansal gagnvart 19 ára stúlku. Óskað hefur verið eftir áframhaldandi gæsluvarðahaldi Lithánna sem rennur út í dag. 30. desember 2009 10:24