Segir íslenska dómstóla gelda með Icesave samningunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. desember 2009 20:44 Bjarni Benediktsson. Mynd/GVA.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Íslendingum beri hvorki lagaleg né siðferðileg skylda til þess að bera þær byrðar sem Icesave skuldbindingin feli í sér. Íslendingar hafi heldur enga pólitíska hagsmuni af málinu. „Við höfum enga pólitíska hagsmuni af því að sæta hótunum og þvingunum eins og ríkisstjórnin hefur látið fara með okkur," sagði Bjarni á þingi í kvöld. Bjarni sagði að Íslendingar hafi boðið miklu meira heldur en hægt var að ætlast til að íslenska þjóðin legði af mörkum til að leysa Icesave málið. Viðsemjendur Íslendinga hefðu hins vegar hafnað öllum málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar og samninganefnda hennar og þvingað fram niðurstöðu sem var kolólögleg. Viðsemjendur hafi einnig hafnað þeirri niðurstöðu sem Alþingi Íslendinga komst að í haust þegar viðaukar við samninginn voru samþykktir. Þá sagði Bjarni óljóst hvort frumvarpið stæðist stjórnarskrá og búið væri að gelda íslenska dómstóla í málinu. Íslenskir dómstólar væru réttir dómstólar í þessari deilu. „Í stað þess er okkur gert að taka málið upp fyrir breskum dómstólum," sagði Bjarni. Hann sagðist mótmæla því sérstaklega að Íslendingar væru í verri málum með því að hafna þessum samningi heldur en að samþykkja hann.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Innlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Fleiri fréttir Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja Sjá meira