Segja lærin hvergi flottari en í Norður-Þingeyjarsýslu 20. október 2009 09:22
Konur í Norður-Þingeyjarsýslu segja að hvergi finnist flottari læri en þar. Svo stoltir eru Norður-Þingeyingar af lambakjötinu sínu að þeir neita að selja það ódýrt.Í Norður-Þingeyjarsýslum er sauðfjárrækt ein mikilvægasta atvinnugreinin og þar eiga bændurnir fyrirtækið Fjallalamb, sem er langstærsti atvinnurekandinn á Kópaskeri. Þarna starfa 12 til 15 manns í kjötvinnslu allt árið en í sláturtíðinni fer allt á hvolf og þar eru þessa dagana milli 60 og 70 manns í vinnu, þar af helmingurinn útlendingar. Heimafólkið er stolt af afurðunum.Matsmennirnir Fjóla Runólfsdóttir, frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði, og Guðrún Hvönn Sveinsdóttir, frá Hvannstóði í Borgarfirði eystra, segja báðar að lærin þarna séu ekkert venjuleg. Þær hafi aldrei séð önnur eins læri. Bændur hafi metnað fyrir ræktuninni og ekki sé alltaf auðvelt að vera matsmaður á Kópaskeri því þarna viti bændur í hvaða flokka lömbin sín eigi að fara. Um þrjátíu þúsund skrokkar renna þarna í gegn í haust. Dilkarnir eru vænir, meðalþungi rétt um 16 kíló.Það er einmitt héðan sem hið fræga Hólsfjallahangikjöt kemur en Fjallalamb hefur verið í fararbroddi að upprunamerkja vörurnar og tengja þannig neytendur beint við bændur. Þarna vilja menn ekki selja lambakjötið ódýrt. Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs, segist telja að þeir séu með sérstöðu á markaði og dýra og góða vöru.Um fimmtán prósent lambakjötsins er selt út til Noregs og Svíþjóðar fyrir verð sem þeir telja búandi við. Björn Víkingur segir að gengið og staða krónunnar hafi breytt öllu fyrir útflutninginn.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira