Lögregla stöðvar enn eina kannabisræktunina 15. janúar 2009 14:33
Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Jafnframt var lagt hald á búnað sem tengdist starfseminni sem og fjármuni sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Lögreglan hefur undanfarið stöðvað kannabisræktun víða á höfuðborgarsvæðinu. Þann 9.janúar stöðvaði lögreglan álíka ræktun í fjölbýlishúsi í Grafarholti. Við húsleit þar fundust um 70 kannabisplöntur, þar af margar á lokastigi ræktunar. Jafnframt var lagt hald á ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Kona á fertugsaldri var í kjölfarið handtekin en hún hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Þá þefaði lögreglan upp kannabisræktun í bílskúr í Breiðholti í byrjun árs. Einn maður var handtekinn vegna málsins og játaði að eiga umræddar plöntur og búnað. Lögreglan var í hávaðaútkalli í grendinni þegar hún fann megna kannabislykt. Við nánari skoðun fann hún um 100 plöntur og búnað til ræktunar. Í byrjun desember handtók lögreglan síðan karlmann um fertugt í tengslum við fund á um 20 kannabisplöntum á ýmsum stigum ræktunar. Þá ber einnig að geta að lögreglan á Selfossi handtók 16 manns í gær og framkvæmdi húsleitir á sex stöðum á Selfossi, Hveragerði og í Grímsnesi. Rannsókn lögreglunnar beinist að fíkniefnamálum, þjófnuðum og innbrotum, meðal annars í gróðurhús í Árnessýslu þar sem gróðurhúsalömpum hefur verið stolið til kannabisræktunar. Þessi góði árangur lögreglunnar er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira