Flugmenn mótmæla harðlega frumvarpi um rannsókn flugslysa Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. október 2009 14:52 Flestir flugmenn í FIA vinna hjá Icelandair Group. Mynd/ Vilhelm.
Stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir að ef Alþingi samþykkir lagafrumvarp samgönguráðherra um rannsókn samgönguslysa geti flugmenn ekki ábyrgst framhald á því góða samstarfi við flugmálayfirvöld varðandi flugslys og flugatvik, sem áunnist hefur undanfarin ár. Í yfirlýsingu sem stjórn FÍA sendi samgönguráðuneytinu í dag segir að félagið hafi í apríl síðastliðnum lýst afstöðu sinni og alvarlegum áhyggjum af framgangi þessa máls, en ráðuneytið hafi ekki séð ástæðu til að leita eftir frekari samvinnu um málið. Kjartan Norðdahl héraðsdómslögmaður og fyrrverandi flugstjóri segir í samtali við Vísi að sátt hafi verið um lagaumgjörð og framkvæmd í þessum málaflokki undanfarin ár. Þess vegna þyrfti að vanda mjög vel til verka ef það ætti að fara að hrófla eitthvað við þeirri lagaumgjörð. Kjartan segist þó skilja ef vilji sé til þess að hagræða í rekstri rannsóknarnefndar flugslysa. Það ætti hins vegar ekki að gera með því að breyta lagaumgjörðinni. Í yfirlýsingunni sem send var samgönguráðuneytinu er lýst áhyggjum af því að ef ekki ríki sátt um lagaumhverfið sem varði rannsóknir flugslysa geti það leitt til þess að dragi úr trausti og samstarfsvilja flugmanna til að tjá sig við rannsóknarnefndina. Það muni hafa stórskaðleg áhrif á framgang flugslysarannsókna og þar með almennt flugöryggi.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Sjá meira