Skrautvagnar á byltingarhátíð 2. október 2009 04:30 Skrautsýning í Peking. Íburðurinn var gríðarlegur og þótti minna á Ólympíuleikana í fyrra. Nordicphotos/AFP
Kínverskir hermenn gengu í skrautfylkingum yfir Torg hins himneska friðar í Peking milli þess sem skriðdrekum og öðrum vígvélum var ekið um torgið. Kínverskir ráðamenn fylgdust grannt með hersýningunni, sem er sú stærsta sem Kínverjar hafa efnt til. Tilefnið er sextíu ára byltingarafmæli kommúnistastjórnar landsins, sem náði völdum 1. október árið 1949 eftir tuttugu ára harðvítugt borgarastríð. Hver skrautvagninn á fætur öðrum birtist einnig á torginu með glæsiatriðum úr sögu byltingarinnar og kommúnistastjórnarinnar allt til Ólympíuleikanna á síðasta ári. Íburðurinn minnti verulega á Ólympíuleikana í fyrra, fyrir utan hernaðaráhersluna. Hu Jintao forseti klæddist hins vegar Maó-jakka í tilefni dagsins og fylgdist með sýningunni, sem í aðra röndina var greinilega ætlað að sýna fram á hvers Kínverjar eru megnugir í dag. Miklar breytingar hafa orðið í Kína þessa sex áratugi, sem liðnir eru frá því að Mao Zedong lýsti yfir stofnun Alþýðulýðveldisins. Þá var landið eitt hið fátækasta í heimi og mátti sín lítils á alþjóðavettvangi. Nú er Kína þriðja stærsta hagkerfi heims og áhrif þess í heiminum eru sívaxandi. Lögregluþjónar voru á hverju strái og höfðu greinilega áhyggjur af því að eitthvað færi úrskeiðis, annaðhvort að fagnaðarlætin færu úr böndum eða einhverjir tækju upp á því að mótmæla, því undir niðri kraumar óánægja í samfélaginu. Sumir Kínverjar kvörtuðu undan því við erlenda fréttamenn að öryggisráðstafanirnar væru svo þunglamalegar að þær hefðu bitnað á þátttöku almennings í hátíðarhöldunum. Þær sýndu einnig hve stjórnin bæri lítið traust til almennings. „Áður fyrr gátum við tekið þátt í skrúðgöngunum eða að minnsta kostið staðið til hliðar og fylgst með,“ sagði Winston Liu, maður sem sást á gangi um hliðargötur skammt frá Torgi hins himneska friðar. „Núna er þetta allt saman undir ströngu eftirliti. Sjálfsagt er það af öryggisástæðum.“ Ráðamenn hvöttu hins vegar almenning til þess að fylgjast með herlegheitunum í beinni útsendingu í sjónvarpi. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira