Stúdentar fordæma niðurskurð menntamálaráðherra Magnús Már Guðmundsson skrifar 4. september 2009 19:49 Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Mynd/Stefán Karlsson
Stúdentaráð Háskóla Íslands fordæmir fyrirhugaðan niðurskurð menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, til Háskóla Íslands á komandi skólaári. Á álykun ráðsins segir að ljóst sé að niðurskurðurinn muni koma hart niður á Háskólasamfélaginu og fela í sér verulega skerta þjónustu og lakari menntun. „Í kjölfar hækkandi atvinnuleysis á Íslandi hafa stjórnvöld hvatt fólk til að ganga menntaveginn. Það þykir því fásinna að boðaður sé slíkur niðurskurður í Háskólanum á sama tíma og nýskráningum í skólann fjölgar verulega. Það er ógjörningur að mennta þá tæplega 15.000 stúdenta sem nú eru skráðir til náms í Háskólann ef þeim fylgir ekkert fjármagn frá ríkinu," segir í ályktun Stúdentaráðs. Að mati ráðsins gegnir Háskóli Íslands mikilvægu hlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags. Stjórnvöldum beri því að tryggja skólanum það fjármagn sem nauðsynlegt sé til að framfylgja því mikilvæga hlutverki. „Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur menntamálaráðherra til að endurskoða ákvörðun sína um niðurskurð til Háskólans og forgangsraða þess fremur ríkisfjármunum í þágu menntunar á Íslandi - en einmitt þannig má íslenska þjóðin vinna sig úr átakaveðrinu."
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Sjá meira