Neitar að láta fyrrum forstjóra FME kenna sér viðskiptalögfræði Valur Grettisson skrifar 4. september 2009 11:43 Jónas Fr. Jónsson, fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins og stundarkennari við HR.
Nemandi í Háskólanum í Reykjavík sendi fimmtíu og einum samnemenda og yfirstjórn skólans tölvupóst á dögunum þar sem hann baðst undan að sitja tíma sem Jónas Fr. Jónsson, fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins kennir. Neminn heitir Fjalar Sigurðarson og er almannatengslafulltrúi. Áður var hann dagskrágerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu. Jónas Fr. kennir kúrs í MBA námi sem heitir Business Law and Corporate Responsibility. Á íslensku gæti það útlagst sem fyrirtækjalögfræði og viðskiptasiðfræði Í póstinum sem Fjalar sendi á samnemendur og skólayfirvöld spyr hann hvort það sé hægt að ætlast til þess að fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins fjalli á hlutlægan og akademískan hátt um lögin, fyrirtækið, löggjafar- og framkvæmdarvaldið, eftirlitsaðilana og atburðina sem hér urðu. Þegar Vísir hafði samband við Fjalar sagðist hann ekki vilja dragast inn í þessa umræðu persónulega. Hann neitaði því að tjá sig um málið og segir það á milli sín og skólayfirvalda. Forstöðumaður námsins, Aðalsteinn Leifsson, segir að eftir að pósturinn var sendur út þá hafi nemendur sest niður með honum og deildarforseta og rætt málið opinskátt. Meðal annars hafi Fjalar setið fundinn þar sem aðkoma Jónasar að kennslu var rædd. Í kjölfarið fór gæðaráð árgangsins yfir málið en í því sitja fulltrúar nemenda. „Við ákváðum að halda okkar striki. Ein af ástæðunum fyrir því að Jónas hefur kennt þennan kúrs í mörg ár er sú að hann hefur einstaka reynslu og hefur framúrskarandi þekkingu og menntun á þessu sviði," segir Aðalsteinn en Jónas hefur lengi verið stundarkennari við skólann. Námið sem um ræðir er á sviði félaga-, samkeppnis- og samningaréttar en fjallar ekki um fjármálahrunið sem slíkt. Annar kennari, Ketill Berg Magnússon, sérfræðingur í viðskiptasiðfræði, kennir þann hluta námskeiðsins sem snýr að siðferðislegum álitamálum. Að sögn Aðalsteins tók skólinn sjálfur ekki formlega afstöðu í þessu máli umfram að Aðalsteinn sem forstöðumaður námsins varð við bón Fjalars um að sitja ekki tíma hjá Jónasi, þar sem hann gat setið í sambærilegum áfanga í meistaranámi í lagadeild skólans. Enginn annar nemandi hefur beðist undan að sitja í tímum kenndum af Jónasi.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Sjá meira