Lífið

Slagur stelpnanna hefst í kvöld

Það verður spennandi að sjá hvaða 5 stelpur komast í úrslit í kvöld.
Það verður spennandi að sjá hvaða 5 stelpur komast í úrslit í kvöld.

Föngulegur hópur 20 söngvara hafa nú verið valdir af dómnefnd Idolsins til að halda áfram keppni um titillinn Idol stjarna 2009.

Í kvöld keppa 10 efnilegustu stelpurnar um áframhaldandi sæti í Idol stjörnuleit í beinni útsendingu frá íslensku Óperunni.

Idol Stjörnuleit er á dagskrá Stöðvar 2 á föstudögum kl. 20.30. Þátturinn er endursýndur á laugardögum kl. 14:15 á Stöð 2 og á laugardögum og sunnudögum kl. 20:00 á Stöð 2 Extra.

Keppendur koma fram og flytja lag við undirleik húsbands Idolsins sem leitt er af Vigni Snæ Vilbergssyni gítarleikara.

Áhorfendur heima í stofu sem ráða úrslitum og komast þær 4 stelpur sem flest atkvæði fá í símakosningu áfram og fellur svo í hlut dómnefndar að velja þá fimmtu áfram.

Hér á eftir fer rétt röð keppenda, hvaða lag þeir munu taka og hvert símakosninganúmer þeirra er:

Björn Jörundur, Jón og Selma.

1. Hrafna - Fæ aldrei nóg / Todmobile - 900 9001

2. Díana Lind - Horfðu til himins / Nýdönsk - 900 9002

3. Þóra Björg - Mér Þér / Ragnheiður Gröndal - 900 9003

4. Marína - Dans dans dans / Jóhann G. Jóhannsson - 900 9004

5. Berglind Ósk - Ferjumaðurinn / Mannakorn - 900 9005

6. Sylvía Rún - Presley / Grafík - 900 9006 

7. Alexandra - Héðanífrá / Ragnheiður Gröndal - 900 9007 

8. Lísa - Allt sem ég sé / Írafár - 900 9008

9. Ólöf Katrín - Ástarsæla / Gunnar Þórðarson - 900 9009

10. Anna Hlín - Í Reykjavíkurborg / Þú og ég - 900 9010

Idolvefurinn






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.