Fimmtungur borgar ekki eða í vanskilum 28. ágúst 2009 06:00
Tuttugu prósent húsnæðislána hjá viðskiptabönkunum þremur eru í vanskilum eða ekkert er greitt af þeim. Stjórnvöld hyggjast skoða fjárhagsvanda heimilanna vegna greiðslubyrði og skuldsetningar heildstætt. Þar verður því ekki einungis horft til húsnæðislána, heldur einnig bílalána. Nefnd á vegum þriggja ráðuneyta hefur fjallað um skuldavanda heimilanna síðan í byrjun ágúst, með sérstöku tilliti til þess hvernig þau úrræði sem boðið hefur verið upp á hafa reynst. Gert er ráð fyrir að þessi nefnd komi með tillögur og úrræði á næstunni. Í vinnu nefndarinnar mun mönnum orðið ljóst að óháð því hvaða aðferðafræði verði beitt, sé óumflýjanlegt að líta bílalán sömu augum og húsnæðislán. Annars sé jafnræðis ekki gætt. Ekki er rætt um flata niðurfellingu skulda, enda hefur það komið skýrt fram að hið opinbera hafi ekki bolmagn til slíkrar aðgerðar. Því er líklegra að bönkunum og lánafyrirtækjum verði falið að útfæra leiðirnar á sínum forsendum og forsendum skuldara. Samkvæmt úttekt Seðlabanka Íslands, sem gerð var fyrir viðskiptaráðuneytið og birt í byrjun júlí, eru 40.414 manns með bílalán í erlendri mynt að öllu leyti eða að hluta. Heildarupphæð lánanna er 115 milljarðar króna. Gengisbundin skuldabréf til heimila voru 315 milljarðar í lok september, þar af 107 milljarðar skilgreindir sem erlend húsnæðislán, samkvæmt svari félagsmálaráðherra á Alþingi í febrúar. „Þetta er mikið forgangsmál og mikil áhersla lögð á að bregðast við skuldavanda heimilanna, bæði íbúða- og bílalánum," segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. „Það þarf kannski að grípa til róttækari aðgerða sem gætu falið í sér niðurfellingu skulda, hvort sem það er gert með formlegri greiðsluaðlögun eða hvort viðkomandi stofnanir setja upp áætlun sem gengur upp fyrir viðskiptavini þeirra," segir Gylfi. - shá / vsp
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira