Tyson handtekinn enn á ný Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. nóvember 2009 08:58 Mike Tyson.
Hnefaleikameistarinn fyrrverandi, Mike Tyson, var handtekinn á flugvellinum í Los Angeles í gær eftir að til átaka kom milli hans og ljósmyndara. Lögregla hefur ekki getað greint fullkomlega frá atburðarásinni enn sem komið er þar sem óljóst er hvað gerðist nákvæmlega. Svo virðist þó sem ljósmyndarinn hafi byrjað að mynda hnefaleikakappann og því næst slegið til hans, að því er virðist til að ögra honum. Tyson sló manninn þá niður og reyndi svo að fjarlægja filmuna úr myndavél hans. Lögregla handtók Tyson og ljósmyndarann og mega þeir báðir eiga von á ákæru fyrir athæfið. Mikið er um að svonefndir paparazzi-ljósmyndarar hangi á flugvellinum í Los Angeles í von um að ná myndum af leikurum og öðru frægu fólki sem þangað leggur leið sína. Hugtakið paparazzi, sem notað er um þessa stétt ljósmyndara, er upphaflega komið úr kvikmynd Federico Fellini, La dolce vita frá 1960. Í henni lék Walter Santesso blaðaljósmyndara að nafni Paparazzo en nafnið þýðir moskítófluga og festist síðar við þennan sérstaka hóp ljósmyndara vegna starfs þeirra en þeir flykkjast að stjörnunum líkt og flugur. Tyson hefur áður komið við sögu lögreglu vegna ofbeldis og frægt varð atvikið þegar hann beit stykki af eyra Evanders Holyfield í hnefaleikaviðureign árið 1997. Einnig hlaut hann þriggja ára fangelsisdóm fyrir nauðgun árið 1992. Tyson hætti hnefaleikakeppni árið 2005.
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Fleiri fréttir Rússneskir njósnarar vildu kasta rýrð á Svía, NATO og ESB Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Sjá meira