Fylgjast með íslensku Vítisenglunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. ágúst 2009 20:00 Lúðvík Geirsson fylgist með Vítisenglunum á meðan þeir eru í Hafnarfirði. Mynd/ Stefán.
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa ásamt lögreglunni fylgst með starfsemi Fáfnismanna, eða Hells Angels Prospects, eins og þeir heita nú, eftir að klúbburinn fluttist í Hafnarfjörð í vor. Stutt er síðan að nafni vélhjólaklúbbsins var breytt en hann er nýorðinn opinber stuðningsaðili að Vítisenglum og er það liður í átt að fullgildri félagsaðild. Þá er Jón Trausti Lúthersson, sem var formaður Fáfnis, hættur í klúbbnum en nýr formaður hefur tekið við. Hann heitir Einar „Boom" Marteinsson, eins og Vísir greindi frá á föstudaginn og fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að málin hafi verið skoðuð frá því í vor þegar fréttist af því að klúbburinn væri fluttur af Hverfisgötunni og búinn að koma sér upp aðstöðu í Hafnarfirði. Hann kannast ekki við það að Hafnfirðingar hafi orðið fyrir ónæði vegna klúbbsins. „Þetta er yst í iðnaðarhverfi, fjarri allri íbúðarbyggð. Þannig að í sjálfu sér er ekkert sem bannar þeim að vera þarna með sína starfsemi," segir Lúðvík. Hann segir að það sé lögreglunnar að fylgjast með því hvort að félagið sé með löglega starfsemi. Það sé hins vegar bæjaryfirvalda að sjá til þess að byggingarskilmálar og skipulag sem gildi á svæðinu sé virt. „Það er ekki gert ráð fyrir því né heimild til þess að þarna sé einhver samkomustaður eða gisting eða neitt," segir Lúðvík.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira