Ísland er engu að síður ódýrt 23. mars 2009 04:00 Erlendir ferðamenn sem skoða verð hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum, átta sig ekki á því að gengi íslensku krónunnar er annað erlendis en hér.
Tvöföld gengisskráning íslensku krónunnar hér á landi og erlendis truflar ferðaþjónustuna hér á landi. Ferðamenn, sem skoða verð til dæmis á netinu, og miða við gengi íslensku krónunnar erlendis reikna út allt annað verð en miðað við gengið hér. Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, kannast við þennan vanda og segir hann helst eiga við um einstaklinga sem skoði og kaupi ferðir á Netinu, umreikni verðið í sinn gjaldmiðil og noti þá gengi erlendis sem sé allt annað en hér. „Þá kemur upp þessi misskilningur en þegar maður útskýrir málið þá skilja menn þetta,“ segir Steingrímur. Hann kveðst bregðast við með því að umreikna verðið í evrum á gengi Seðlabankans. „Ísland er samt ódýrt þó að maður noti það gengi miðað við hvernig það var. Ef maður notar seðlabankagengið er það bara gefins,“ segir hann. Steingrímur verður ekki mikið var við þetta vandamál. „Við höfum ekki mörg svona dæmi en örfá og þá hefur starfsmaðurinn bent viðskiptavininum á að við tökum að sjálfsögðu við upphæðinni í krónum ef viðskiptavinurinn getur keypt krónur í sínum banka, til dæmis í Þýskalandi. Við gefum verðið upp í krónum á heimasíðunni og fáum þá uppsett verð.“ Ferðaþjónustufyrirtæki eru með samninga við erlendar ferðaskrifstofur í evrum og annarri mynt og eru þeir miðaðir við gamalt gengi. Einstaklingar sem kaupa ferðina á Netinu hafa hins vegar ekki upplýsingar um gengisskráningu hér á landi.- ghs
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira