Útilokar ákvarðanir í anda Einars K. 8. júní 2009 03:00 Tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar fela í sér að þorskveiðikvótinn verði 150 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. fréttablaðið/jón sigurður
Tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar fela í sér að þorskveiðikvótinn verði tíu þúsund tonnum minni en nú er. Atli Gíslason, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, segir að með tillögunum sé Hafrannsóknastofnunin í raun að auka þorskveiðikvótann frá því í fyrra um tuttugu þúsund tonn. „Það voru ákveðin 130 þúsund tonn fyrir síðasta fiskveiðiár en Einar K. Guðfinnsson [fyrrverandi sjávarútvegsráðherra] tók það upp hjá sér í febrúar rétt fyrir stjórnarslit að bæta við þrjátíu þúsund tonnum,“ segir Atli. „Það er mín skoðun að lífríki eigi að njóta vafans. Það er betra að ganga ekki á höfuðstólinn.“ Atli telur að þessar breytingar séu nauðsynlegar, þrátt fyrir bágt efnahagsástand. „Ef við tökum of mikið úr lífríkinu endum við eins og bankarnir. Við eigum ekki að vera í „loftbólubisness“ með auðlindirnar okkar í hafinu, við erum mjög brennd af því í bankastarfsemi. Við verðum bara að hugsa um sjálfbæra þróun og vistvænar veiðar og fara varlega,“ segir hann. „Ég treysti sérfræðingum Hafrannsóknastofnunarinnar í þessu máli. Þeir hefðu mátt fá meiri peninga til rannsókna og annað slíkt en þetta eru áratugarannsóknir sem þeir byggja á. Þetta er markviss ráðgjöf hjá þeim ár eftir ár og við erum í stórhættu ef við fylgjum þeim ekki. Við eigum ekki að taka geðþóttaákvarðanir eins og Einar K. Guðfinnssson tók rétt fyrir stjórnarslit.“ Einar vísar því á bug að um geðþóttaákvörðun hafi verið að ræða. „Sú ákvörðun mín var vel rökstudd. Nú sjáum við líka á mati Hafrannsóknastofnunarinnar á stöðu þorskstofnanna að viðmiðunarstofnarnir í þorskinum eru að stækka, þannig að það er ljóst að ákvörðun mín frá því í vetur var fyllilega rökstudd og langt innan við öll mörk sjálfbærra veiða,“ segir hann. „Ég tel að það sé skynsamlegt að halda sig við þá ákvörðun sem ég tók á síðasta vetri. Þá var það tilkynnt af minni hálfu að gert væri ráð fyrir því að þetta væri ákvörðun til tveggja ára. Mín rök eru þau að 160 þúsund tonna afli væri vel innan marka sjálfbærrar nýtingar og við þessar efnahagslegu aðstæður sem við búum við núna held ég að það væri skynsamlegast að reyna að feta þá slóð.“ Einar Valur Kristjánsson, útgerðarmaður á Ísafirði og stjórnarmaður í LÍÚ, segir að Hafrannsóknastofnunin sé á réttri leið en betur má ef duga skal. „Ég er að vona að maður fái að sjá eitthvað meira en 150 þúsund tonn. Mínum skipstjórum finnst vera mikill fiskur. Við höfum ekki verið að veiða þorsk í mörg ár, við erum alltaf að flýja hann, þannig að manni finnst 150 vera í lægri kantinum. En stóra fréttin er að þetta er staðfesting á því að þetta er á réttri leið,“ segir hann.freyr@frettabladid.is Atli Gíslason
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Fleiri fréttir Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent