Vinstri græn óstjórntæk - vill Hrunflokkastjórn Magnús Már Guðmundsson skrifar 7. október 2009 10:41 Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/Pjetur
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þegar komi að uppbyggingu atvinnulífsins séu Vinstri grænir óstjórntækur flokkur. Hann telur að á næstunni geti skapast aðstæður þar sem lögð verði fram vantrausttillaga á ríkisstjórnina. Jón vill að mynduð verði til eins árs þriggja flokka stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar. Jón segir að ákvarðanir ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum og varðandi álversframkvæmdir á Bakka og í Helguvík sýna að stjórnin sé óhæf til að koma atvinnulífinu af stað. „Það er komið að þolmörkum," segir Jón og bætir við að auk þess sé ríkisstjórnin ósamstíga í aðgerðum sínum. „Það eru fyrst og fremst aðgerðir umhverfisráðherra og viðhorf Vinstri grænna sem eru ekki líkleg til að koma verkefnum í gang sem við teljum bráðnauðsynleg þegar kemur endurreisn atvinnulífsins," segir þingmaðurinn.Ekki rætt innan þingflokksins Af þeirri ástæðu telur Jón nauðsynlegt að nýir aðilar komi að stjórnarborðinu. Mynduð verði til eins árs um ákveðin mál ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar undir forystu sjálfstæðismanna. Jón segir að málið ekki hafa hlotið formlega umræðu innan þingflokksins. Þetta sé sín skoðun. Biðjist ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna ekki lausnar á næstunni útilokar Jón ekki að lögð verði fram á Alþingi vantrausttillaga á stjórnina. „Það getur komið af þeim tímapunkti," segir Jón en tekur fram að málið hafi ekki verið rætt sérstaklega í þingflokki sjálfstæðismanna. Hrunflokkastjórn Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, segir í leiðara í dag að einungis þrír flokkar séu starfhæfir á Alþingi. Framsókn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur. Ríkisstjórn þessara flokka gæti verið lausn á ákveðnum vanda. „Hrunflokkastjórnin gæti hún kallast og verkefni hennar væri auðvitað tiltekt eftir þá flokka sem hana mynda, auk hraðrar stefnumörkunar í stóriðjumálum og uppbyggingar atvinnulífsins. VG væri þá komin í stjórnarandstöðu og allt aftur eins og það á að sér að vera,“ segir Jón í leiðaranum.
Tengdar fréttir Hrunflokkastjórn Allt útlit er fyrir að einungis þrír flokkar séu starfhæfir á Alþingi þessa dagana: Framsókn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur. Hinir tveir flokkarnir eru í svo bágbornu ástandi að þeir geta varla stýrt sér sjálfum. Borgarahreyfingin missti þingmann frá borði strax í sumar. Skömmu síðar sagði þingflokkur hreyfingarinnar skilið við megnið af baklandinu og hélt sína leið undir nýju nafni. 7. október 2009 06:00 Vill ríkisstjórn Samfylkingar, Sjálfstæðiflokks og Framsóknar Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að flokkur sinn myndi þriggja flokka ríkisstjórn með Samfylkingu og Framsóknarflokki. Hann vill að sjálfstæðismaður leiði þá stjórn. Þetta kom fram í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 30. september 2009 17:42 Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Ráðherra með „fráleita hótun“ Innlent Fleiri fréttir Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Sjá meira
Hrunflokkastjórn Allt útlit er fyrir að einungis þrír flokkar séu starfhæfir á Alþingi þessa dagana: Framsókn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur. Hinir tveir flokkarnir eru í svo bágbornu ástandi að þeir geta varla stýrt sér sjálfum. Borgarahreyfingin missti þingmann frá borði strax í sumar. Skömmu síðar sagði þingflokkur hreyfingarinnar skilið við megnið af baklandinu og hélt sína leið undir nýju nafni. 7. október 2009 06:00
Vill ríkisstjórn Samfylkingar, Sjálfstæðiflokks og Framsóknar Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að flokkur sinn myndi þriggja flokka ríkisstjórn með Samfylkingu og Framsóknarflokki. Hann vill að sjálfstæðismaður leiði þá stjórn. Þetta kom fram í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 30. september 2009 17:42