Sextán ára stúlka drakk sig í hel Óli Tynes skrifar 15. október 2009 12:30
Yfirvöld í Bretlandi hafa sent aðvörun sem sérstaklega er beint til unglinga eftir að sextán ára gömul stúlka drakk sig í hel innflutningspartýi vinar síns. Rhona Taverner var fyrirmyndarnemandi með A í öllum fögum. Hún var síður en svo drykkfelld en í umræddu samkvæmi er talið að hún hafi drukkið um hálfan lítra af Vodka. Þegar hún virtist deyja áfengisdauða ákváðu vinir hennar að keyra hana heim. Þeir hringdu til foreldra hennar til að segja þeim að Rhona hefði drukkið of mikið og þeir væru að koma með hana. Rétt þegar komið var að húsinu gerðu vinirnir sér grein fyrir að hún var hætt að anda. Þá var bíllinn stöðvaður og lífgunartilraunir hafnar. Jafnframt var hringt á sjúkrabíl. Á sjúkrahúsinu úrskurðuðu læknar að Rhona væri heiladauð. Hjarta hennar hefði stöðvast vegna áfengismagnsins og heilinn liðið slíkan súrefnisskort að hann hefði hætt að starfa. Fjórum dögum síðar létu foreldrar hennar slökkva á öndunarvélinni sem hélt henni á lífi. Dánardómstjóri úrskurðaði að Rhona hefði látist af slysförum. Hann hafði skilaboð til þeirra sem voru viðstaddir dómsúrskurðinn en meðal þeirra voru margir af vinum Rhonu. -Áfengi er eitur og ef þið drekkið nóg af því þá deyið þið. Það skiptir ekki máli hver þið eruð, hversu stór þið eruð eða hvort þið drekkið reglulega eða sjaldan. Áfengi drepur.
Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Innlent Katrín orðin stjórnarformaður Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Sjá meira