Trylltist í flugvél - átti að verða vændiskona á Íslandi 15. október 2009 12:36
Þrír karlmenn voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í tengslum við meint mansalsmál. Upphaf þess má rekja til komu ungrar litháeskrar konu til landsins um síðustu helgi, en hana þurfti að binda niður í sæti flugvélar Iceland Express eftir að hún hafði veist að öðrum farþegum í vélinni. Konan mun hafa slegið fólk og látið öllum illum látum í flugvélinni. Var hún sögð í annarlegu ástandi og talið að hún væri undir áhrifum fíknefna. Starfsfólk um borð sá sér ekki annað fært en að binda konuna niður í sæti sitt svo hún færi ekki sjálfri sér og öðrum að voða. Farþegar aðstoðuðu flugliðana við að hemja konuna. Lögreglan handtók konuna á Keflavíkurflugvelli, en flugvélin var að koma frá Varsjá í Póllandi. Samkvæmt heimildum fréttastofu fullyrti konan að það ætti að nota hana í vændi á Íslandi. Þrír litháeskir karlmenn sem búsettir eru hér á landi voru handteknir í framhaldinu og hefur málið vafið upp á sig samkvæmt heimildum fréttastofu. Sönnunarbyrði í málum sem þessum er þó sögð afar erfið.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Sjá meira